Skírnir - 01.01.1942, Blaðsíða 70
68
Bjöin Þórðarson
Skírnir
þar. En hér var fríverzlunarstefnan þröskuldur í vegi,
og þrátt fyrir harðfengilega baráttu Chamberlains var
verndartollastefna hans alveg kveðin niður. Viðhorfið í
þessum efnum breyttist ekki í verulegum atriðum fyrr en
íhaldsflokkurinn gerði tollamálið að höfuðmáli við þing-
kosningarnar 1931 og vann mikinn sigur í kosningunum.
í stjórn þeirri, sem mynduð var að afstöðnum kosningum,
tók sæti Neville Chamberlain og féll það nú í hans hlut að
gerast forystumaður að þeim stefnubreytingum í tollmál-
um, sem faðir hans hafði barizt fyrir. En það, sem úrslit-
um réði nú um hina breyttu stjórnmálastefnu, var fleira
eji að styrkja taugar samveldisins, það voru einnig fjár-
mál brezka ríkisins, atvinnumálin innanlands í Bretlandi
og viðskiptalífið í umheiminum yfirleitt.
Samkvæmt lögum, sem sett voru í febrúar 1932, var
lagður verðtollur á innfluttar vörur með aðaltollstiga
10%, en frá þessu voru gerðar margar undantekningar,
sem hér verða ekki greindar. Undanþegnar tolli voru vörur
frá nýlendunum svo og samveldislöndunum, þar til samn-
ingar tækjust við þau. Ráðstefna var haldin í Ottawa sum-
arið 1932 um tollamálin. Stóra-Bretland bauð nú sam-
veldislöndunum forréttindi á móts við þau, er brezkar
vörur nyti hjá þeim. Bretland óskaði einnig, að samveldis-
löndin lækkuðu hina háu verndartolla, sem þau höfðu
sett og að slíkir tollar væru aðeins látnir haldast á út-
lendum vörum. Voru nú margir samningar gerðir milli
Bretlands og samveldislandanna, þar sem þeim voru
tryggð ákveðin forréttindi um tolla og innflutning í stað-
inn fyrir rýmkun á forréttindum fyrir brezkar vörur.
Það mun erfitt að skera úr því, hver áhrif þessi nýja
brezka tollmálapólitík og Ottawasamningarnir hafa haft
fyrir beinlínis aukin viðskifti innan heimsveldisins frá
1932 og fram til upphafs núverandi stríðs. Það eru svo
mörg önnur öfl, sem hafa verið að verki samtímis í milli-
ríkjaviðskiptum og heimspólitíkinni yfirleitt. En á þessu
tímabili var talin koma fram vaxandi tilhneiging í ný-
lendunum, samveldislöndunum og Bretlandi til að draga úr