Skírnir - 01.01.1942, Blaðsíða 128
126
Ólafur Lárusson
Skírnir
fylgdi vatnsvígslum sínum, og því hafa margir aðrir trú-
að, bæði meðan hann var á lífi og síðar. Sögur hans og
drápurnar um hann kunna margt að segja af jarteinum
þeim, sem gerðust af vatni hans.
Það hafði fyrst og fremst mikinn læknisdóm í sér fólg-
inn, og varð mörgum mönnum til mikillar heilsubótar í
ýmis konar sjúkdómum. Um brunninn, sem hann vígði á
Mýrum í Dýrafirði, segir, að „náliga varð allt heilt, þat er
á bergði“, og meira að segja er sögn um það, að tvær fóta-
veikar konur, sem óðu óvitandi lækinn, sem frá lindinni
rann, fengu bót meina sinna.C!l) Vatn Guðmundar biskups
þótti máttugra en annað vígt vatn. Kona varð óð í Flatey
á Skjálfanda. Vígðu prestar henni vatn og margs annars
var í leitað og stoðaði ekki. Þá dreymdi aðra konu, að
María guðsmóðir kom til hennar og gaf það ráð, að láta
sækja vatn Guðmundar prests góða, vinar síns, „því at mér
þikkir hann bezt vígja vatnit“.70) Vatn hans gat jafnvel
vakið menn úr dauðadái. Prestsson í Árnesi féll í sjó og
virtist örendur, er hann náðist, en lifnaði, er vatni Guð-
mundar biskups var hellt ofan í hann.71) Jafnvel mosinn
úr lindum biskups hafði læknisdóm í sér fólginn. Maður
varð fyrir steinkasti í fuglabjargi og brotnaði hauskúpan.
Kona nokkur tók hann til lækninga, tók burtu beinbrotin,
fægði sárið og fyllti það með vatnsmosa úr brunni herra
Guðmundar. Greri mosinn „niðr í hausinn svá sem muter-
aður (o: breyttur) í beins náttúru ok er frá leið tók jafn-
vel hörundslit“ og varð maðurinn alheill innan fárra
daga.72) Vatn hans læknaði jafnt skepnur sem menn. Svo
slysalega vildi til eitt sinn, að auga rakst úr hesti á fjall-
vegi nokkrum. Sá, sem með hestinn fór, bar í augnastaðinn
brunnvatn herra Guðmundar, hið fyrsta sem hann náði
því, og varð hesturinn alheill og alskyggn báðum augum
eftir tvö dægur.73)
En það var ekki lækningakraftur einn, sem vatni því
fylgdi, er Guðmundur biskup vígði, heldur fylgdi því og
margháttaður kraftur annar. Það gerðist í lifanda lífi
Guðmundar, að eldur kom upp á Hólum í Hjaltadal.