Skírnir - 01.01.1942, Blaðsíða 65
Skírnir
Brezka þjóðasamfélagið
63
dómstólum nýlendnanna. í dóminum eiga sæti, auk hinna
frábærustu enskra og skozkra dómara, dómarar frá sam-
veldislöndunum, sem fullnægja vissum skilyrðum. Þessi
dómstóll er enn þá hæstiréttur fyrir samveldislöndin að
svo miklu leyti sem þau hafa ekki með sérlöggjöf sinni
numið málskot þangað úr lögum. Einstaklingum er óhægt
að skjóta málum þangað kostnaðar vegna. Þau mál, sem
dómstóllinn hefir haft til meðferðar frá samveldislöndun-
um hin síðari ár, eru einkum deilur milli fylkisstjórna og
sambandsstjórna um valdsvið hverra um sig. Eire hefir
afnumið alveg rétt til málskots til dómstólsins og önnur
samveldislönd takmarkað þann rétt, nema Nýja-Sjáland.
Annars virðast samveldislöndin ekki hafa sterka tilhneig-
ingu til að slíta með öllu þetta samband við móðurlandið,
þótt þau öll, á grundvelli Westminsterlaganna, muni hafa
vald til þess með sérlöggjöf frá sinni hlið.
Brezkur ríkisborgararéttur nær til alls heimsveldisins,,
og sá, sem er ríkisborgari í samveldislandi, hefir einnig
brezkan ríkisborgararétt. En samveldislöndin geta sett
sérákvæði um ríkisborgararétt hjá sér, og hafa Canada,
Suður-Afríka og Eire sett lög um ríkisborgararétt hvert
fyrir sig, en ekki Ástralía eða Nýja-Sjáland enn þá, svo
að brezkur ríkisborgararéttur gildir í þessum löndum án
nokkurra takmarkana. Af þessu er sýnt, að ríkisborgara-
rétturinn er ekki öruggur tengiliður innan samveldisins.
Samveldis-ráðstefna (Imperial eða Commonwealth Con-
ference). Árið 1887, er hin miklu hátíðahöld fóru fram í
tilefni 50 ára ríkisstjórnarafmælis Viktoríu drottningar,
sendu allar sjálfstjórnarnýlendurnar forsætisráðherra
sína til London. Félag alríkissinna notaði þetta tækifæri
til að koma á fundi með ráðherrum þessum og aðalmönn-
um stjórnarinnar heima. Þessi fundur fékk nafnið Ný-
lenduráðstefna. Engar mikilvægar ályktanir voru gerðar
á fundi þessum, en fundarmönnum kom saman um, að
slíkir fundir gætu verið þarflegir. Árið 1897 átti drottn-
ingin 60 ára ríkisstjórnarafmæli, og voru nú forsætisráð-
herrar nýlendnanna aftur staddir í London. Þeir áttu nú