Skírnir - 01.01.1942, Blaðsíða 177
Skírnir
Frá mínum dyrum séð
175
gangi sínum, eins og sagan sýnir bæði fyrr og nú. Það
segir sig líka sjálft, að einstaklingurinn þarf til þess ein-
hverja þekkingu, einhverja fræðslu — allt þarf maðurinn
að læra — eins í grundvallaratriðum stjórnarfarsins eins
og öðru, og svo að kynna sér framkvæmd þess, til þess að
fá hugmynd um það, hvað af honum sé heimtað sem ábyrg-
um borgara í þjóðfélaginu, hvað honum beri að gera, eða
ekki að gera, því að á því velti ekki aðeins hans eigin fram-
tíð og hans nánustu, heldur allrar þjóðarinnar. Lýðræðis-
fyrirkomulagið leggur miklar skyldur og ábyrgð á herðar
einstaklingunum, þess vegna verður þjóðfélagið að gera
eitthvað til þess að einstaklingurinn verði sem færastur
til að inna þá ábyrgðarmiklu skyldu af hendi sem beztr
lærður sem ólærður, en kasta þeim ekki út í lífið alveg
þekkingarsnauðum í þessum efnum — ef vel á að fara.
Mín skoðun er sú, að það sé bráð nauðsyn á fræðslu eða
leiðbeiningu í þessum efnum, og hún á að byrja undir eins
í efstu bekkjum barnaskólanna, því að bæði er, að börn
eru fljótt furðanlega næm fyrir þess konar áhrifum, og
svo er, eins og allir vita, það eina skólagangan, sem marg-
ur fær út í lífið. Þessi fræðsla á einnig að halda áfram í
skólum þeim, sem taka við af barnaskólunum, svo sem
unglingaskólum eða hvað þeir heita, og má henni ekki
sleppa úr þeim skólum, sem veita almenna fræðslu. Með
þessu fyrirkomulagi er von til þess, að almenningur verði
fær um að halda þannig á hinum þýðingarmikla rétti, sem
honum er í hendur fenginn með atkvæði sínu til áhrifa á
stjórnarfarið í landinu, að honum verði bæði til sóma og
blessunar og tryggingar fyrir frelsi hans til frambúðar.