Skírnir - 01.01.1942, Blaðsíða 34
32
Fr. le Sage de Fontenay
Skírnir
undantekningalög gegn Gyðingum, eftir fyrirmyndum
Niirnberglöggjafarinnar.
í þessum málum, eins og öðrum, hafa þeir gengið að
þýzku kröfunum Scavenius utanríkisráðherra, Gunnar
Larsen samgöngumálaráðherra og Thune Jacobsen dóms-
málaráðherra. Þegar frumvarpið var lagt fyrir stjórnina,
mætti það eindreginni mótspyrnu allra hinna ráðherranna.
Stauning forsætisráðherra snerist einnig öndverður gegn
því. Gyðingalögin voru lögð fram í ríkisráði og þar mót-
mælti konungur þeim fastlega, og er sagt, að hann hafi
hótað því að segja af sér, ef knýja ætti fram þessa löggjöf
eftir þýzkum fyrirskipunum. Afstaða konungsins var í
þessum eins og öðrum málum sú, að hann vildi ekki stað-
festa lög, sem meiri hluti Ríkisþingsins hafði ekki sam-
þykkt. Frumvarpið hafði áður verið lagt fyrir samvinnu-
nefndina, eða níu manna nefndina svonefndu, en í henni
eru fulltrúar fjögurra stærstu flokkanna og Réttarflokks-
ins. Frumvarpið var fellt einróma í nefndinni.
Almenningsálitið á þessum Gyðingalögum sést vel á
grein, sem prófessor, dr. theol. Hal Koch skrifaði nýlega
í „Lederbladet“, sem er opinbert málgagn „Dansk Ung-
domssamvirke", en hinn ungi háskólakennari er formaður
þess. Hann segir:
„Dansk Ungdomssamvirke vill vinna fyrir dönsku þjóð-
ina. Þetta er ekki hægt nema fyrir atbeina Þjóðverja í
samræmi við loforð þeirra frá 9. apríl, en þau eru grund-
völlur alls sambands Dana og Þjóðverja. Þjóðverjar hafa
þar lofað því, að skipta sér ekki af dönskum innanlands-
málum. Starf okkar er háð þessum loforðum. Eftir að
Danir hafa gengið að andkommúnistasáttmálanum, kveða
dönsku nazistablöðin upp úr með það, að Danmörk sé
skuldbundin til þess að taka upp andsemitastefnu.
Þessu neitum við afdráttarlaust — ekki einungis af því,
að við erum mannlegar verur og kristið fólk, en einnig af
því, að það rýfur grundvöll starfs okkar. Ef Þjóðverjar
ganga á loforð sín, getur dönsk samvinna ekki haldizt. Hér
er ekki um að ræða réttlæti og sannleika fyrir Gyðingana