Skírnir - 01.01.1942, Blaðsíða 232
II
Skýrslur og reikningar
Skírnir
Risu allir fundarmenn úr sætum og' minntust hinna látnu.
Þá gat forseti þess, að skráðir hefðu verið 65 nýir félagsmenn
síðan síðasti aðalfundur var haldinn.
2. Þá las forseti upp ársreikning félagsins fyrir síðast-liðið ár
og efnahagsreikning þess við lok þess árs. Höfðu þessir reikningar
verið endurskoðaðir af öðrum endurskoðanda einum, og án nokkurra
athugasemda, en hinn endurskoðandinn var fjarverandi. —• Eggert
P. Briem forstjóri setti fram ýmsar athugasemdir um hag félagsins,
tekjur þess og eignir. Svaraði forseti athugasemdum hans og mæltist
jafnframt til þess, að félagsmenn reyndu, hver um sig, að auka hag
félagsins og benda utanfélagsmönnum á að ganga í það. Eggert P.
Briem tók þá aftur til máls og e. fr. Steinn Dofri ættfræðingur;
mæltist hann til, að stjórnin annaðist meiri auglýsing á félaginu.
— Reikningarnir voru síðan bornir upp og samþykktir með öllum
samhljóða atkvæðum. —- Forseti las einnig upp reikning fyrir sjóð
Margr. Lehmann-Filhés og Afmælisjóð félagsins; höfðu þeir einnig
verið endurskoðaðir athugasemdalaust.
3. Þá las forseti upp fundargjörð kjörfundar, sem haldinn hafði
verið daginn fyrir fundinn; hljóðar hún á þessa leið:
„Árið 1942, þriðjudaginn 16. júní, kl. 4 síðdegis, hélt stjórn
Bókmenntafélagsins kjörfund í lestrarsal Þjóðskjalasafnsins. Kjósa
skyldi forseta og varaforseta til 2 ára og 2 fulltrúa til 6 ára í stað
Þorsteins Þorsteinssonar, hagstofustjóra, og Matthíasar Þórðar-
sonar, þjóðminjavarðar.
Kosningar fóru þannig:
Forseti til 1944 var kosinn dr. phil. Guðmundur Finnbogason með
205 atkvæðum. — Prófessor Sigurður Nordal fékk 11 atkvæði og
nokkrir aðrir enn færri.
Varaforseti til 1944 var kosinn Matthías Þórðarson með 212 at-
kvæðum.
I fulltrúaráð voru kosnir: Þorsteinn Þorsteinsson, hagstofu-
stjóri, með 203 atkvæðum og Matthías Þórðarson, þjóðminjavörður,
með 183 atkvæðum. Ýmsir aðrir fengu nokkur atkvæði, dr. Jón Jó-
hannesson 8, aðrir færri. Alls voru greidd 230 gild atkvæði. — Fleira
gerðist ekki. — Fundi slitið“.
4. Því næst voru kjörnir endurskoðendur félagsins; voru þeir
endurkosnir, sem verið höfðu síðast-liðið ár, Brynjólfur Stefánsson
og Jón Ásbjörnsson.
5. Þá lagði stjórnin fyrir fundinn tillögu til breytingar á 24. gr.
félagslaganna, að bætt yrði við hana svo-hljóðandi málsgrein:
Stjórninni er heimilt að innheimta árstillög með verðlagsuppbót
samkvæmt lögmæltri vísitölu í ársbyrjun. — Mælti forseti nokkrum
orðum með tillögunni, og í sama streng tók Gunnlaugur Einarsson