Skírnir - 01.01.1942, Blaðsíða 55
Skírnir
Brezka þjóðasamfélagið
53
landstjóri og fulltrúaþing sett á stofn í tveimur deildum.
Var önnur deildin skipuð mönnum völdum af landstjóran-
um, en hin lýðkjörnum mönnum. Þetta stjórskipulag full-
nægði ekki óskum nýlendumanna. I báðum fylkjum voru
menn óánægðir með vald landstjórans og yfirráð Eng-
lands og loks kom þar árið 1837, að harðvítug uppreisn
brauzt út, og áform voru á prjónunum um að sameinast
Bandaríkjunum. Uppreisnin var bæld niður án verulegra
blóðsúthellinga, og 1838 var jarlinn af Durham skipaður
landstjóri. Ritaði hann nú stjórninni skýrslu um stjórn-
mál nýlendunnar og mælti með ábyrgri stjórn, sem valin
væri að vilja nýlendumanna sjálfra. Árið 1840 setti parla-
mentið nýlendunni ný stjórnskipunarlög, fylkjaskiptingin
var afnumin og nýlendumenn fengu sjálfir meiri hlut-
deild í löggjafarvaldinu en áður. Landstjórinn fékk og
fyrirmæli um að skipa ráðuneyti sitt mönnum, sem hefðu
stuðning meiri hluta þingsins. Árið 1848 lýsti þingið van-
trausti á ráðuneyti landstjórans, og lét hann þá ráðu-
neytið segja af sér, þótt það hefði traust landstjórans
sjálfs, og þar með hófst þingræðisstjórn í Kanada.
Eftir beiðni Kanadamanna og í samræmi við frumvarp,
sem þeir höfðu samið, setti parlamentið lög 1867, þar sem
Nýja-Skotland og Nýja-Brúnsvík voru sameinuð Kanada
á fylkjavísu eftir fyrirmynd Bandaríkjanna, og var þá
einnig Kanada skipt aftur í tvö fylki, Ontario og Quebec.
Eftir því sem landnámið þandist út yfir hið feikna land-
flæmi, sunnan frá Bandaríkjunum og milli hafanna
þriggja, Atlantshafs, Kyrrahafs og Norður-íshafs, fjölg-
aði fylkjunum, og eru þau nú 9 að tölu. f stjórnskipunar-
lögunum er ákveðið, hver mál eru sameiginleg fyrir sam-
bandsveldið og hver sérmál fylkjanna. Sameiginleg mál
eru ekki aðeins utanríkismálin, þar með talin tollmál, held-
ur og sifjamál, refsilöggjöf o. fl. Framkvæmdavaldið er að
forminu til hjá landstjóra krúnunnar og ríkisráði (Privy
Council), sem hann hefir sér við hlið, en í rauninni er
framkvæmdavaldið hjá ráðuneyti, sem landstjórinn skip-
ar samkvæmt þingræðisreglum. Meðal ráðherranna eru