Skírnir - 01.01.1942, Blaðsíða 58
56
Björn Þórðarson
Skírnir
því, að landið væri lagt undir Bretaveldi. Árið 1856 setti
brezka þingið nýlendunni stjórnskipunarlög, þar sem hún
fékk sjálfstjórn, eigið löggjafarþing og framkvæmda-
vald í höndum innlendrar ábyrgrar stjórnar. Svo vel tókst
landsmönnum, að loknum róstutímum fram til 1870, að
fara með sjálfsforræðið, að árið 1907 var Nýja-Sjáland
viðurkennt samveldisland. Landsmenn eru um 11/2 miljón
hvítra manna og um 70 þús. Maori, og eiga 4 fulltrúar frá
þeim setu á þinginu.
Suður-Afríka. 1 lok Napoleonsstyrjaldarinnar eignað-
ist Bretland Höfðaborg til þess að hafa þar flotastöð og
viðkomustað fyrir skip sín, er sigldu suður fyrir Afríku.
Umhverfis staðinn var fámenn nýlenda manna, aðallega
af hollenzkum ættum, er nefndust Búar. Næstu áratugi
fjölgaði þessu fólki ört og innstreymi varð og mikið af
Bretum. Búar ráku landbúnað í stórum stíl og höfðu
Hottintotta í nauðungarvinnu. Nú afnámu Bretar þræla-
hald og töldu Búar, að þeir fengi ekki eins ríflegar skaða-
bætur fyrir þetta eins og þeim hafði verið lofað. Þá skorti
einnig á, að Búar nytu á búgörðum sínum nægilegrar
verndar gegn ránsflokkum herskárra innfæddra manna.
Sambúðin við Breta og hin brezku yfirvöld varð loks svo
erfið, að mikill fjöldi Búa tók sig upp á árunum 1885—36
og flutti búferlum úr Höfðanýlendu með það fyrir augum
að losna undan yfirráðum Breta og njóta óskoraðs sjálf-
ræðis. Sumir fóru til Natal, en létu Bretum það eftir síðar,
enda varð brátt mikill straumur annarra innflytjenda
þangað. Aðrir fóru yfir fljótin Orange og Vaal og stofn-
uðu þar fríríkið Orange og Transvaal. Árið 1852 og 1854
viðurkenndu Bretar sjálfstæði Transvaal og Orangefrírík-
is. Höfðanýlendan fékk hinsvegar ábyrga sjálfstjórn árið
1872 og Natal 1898. Transvaal lenti nú brátt í erjum við
Breta, sem afturkölluðu sjálfstæðisviðurkenninguna og
innlimuðu landið 1877. Eftir hraustlega vörn Transvaal-
búa viðurkenndi Bretland að nýju sjálfstæði lýðveldisins,
þó að áskildum rétti Breta til ihlutunar um afstöðu
þess út á við. Þegar gullið fannst í Transvaal, um 1886,