Skírnir - 01.01.1942, Blaðsíða 62
60
Bjövn Þórðarson
Skírnir
breyta með samkvæði allra samveldislandanna. Samveldis-
löndin geta, samkvæmt þessum lögum, ef þau vilja, slitið
öll lagaleg tengsl milli sín og móðurlandsins, og þar sem
þau eru fjárhagslega óháð ríki og hafa eigin herafla og
utanríkisþjónustu, þá er það ljóst, að nokkrir innviðir
brezka heimsveldisins hafa að forminu til tekið veruleg-
um stakkaskiftum síðan 1914.
Þetta yfirlýsta jafnræði og fullveldi samveldislandanna
hefur á margan hátt sýnt sig í framkvæmd og í því sam-
bandi hafa komið fyrir einkennileg atvik, sem snert hafa
krúnuna sjálfa. Þegar Edward VIII. lagði niður konung-
dóm voru á þingi hvers samveldislands fyrir sig og brezka
þinginu sett lög, sem staðfestu þetta afsal krúnunnar og
hinar nýju ríkiserfðir. En svo vildi til, að Suður-Afríka
afgreiddi lagasetninguna hjá sér degi fyrr en Stóra-Bret-
land og Irska fríríkið degi síðar. Á einum og sama degi
sátu því tveir menn á konungsstóli í brezka samveldinu, en
allt til þess dags hafði konungdómurinn verið talinn ódeili-
legur. Þetta hafði að vísu ekki raunhæfa þýðingu í það
sinn, en gat gefið tilefni til fræðilegra ályktana. Áður var
á það minnzt, hvernig írar notfærðu sér Westminster-
lögin, meðal annars til að afmá nafn krúnunnar úr stjórn-
arskrá sinni. Þá vakti það og athygli á sínum tíma, að
írar ályktuðu að viðurkenna Italíukonung sem keisara
Abessiníu, sem aðeins var mögulegt að gera í nafni kon-
ungs, áður en hann af hálfu Stóra-Bretlands og hinna sam-
veldislandanna hafði viðurkennt hið ítalska keisaradæmi í
Abessiníu.
Þessi tilvik, sem nú voru nefnd og fleiri, gáfu mönnum
tilefni til að hugleiða áður en núverandi styrjöld hófst,
hvort það væri hugsanlegt, að brezka krúnan gæti átt í
styrjöld af hálfu eins hluta samveldisins, þótt friður ríkti
hjá öðrum hluta veldisins. Menn komust að þeirri niður-
stöðu, að frá fræðilegu og stjórnskipulegu sjónarmiði
væri þetta mögulegt, enda höfðu bæði Suður-Afríka og
Eire staðfastlega haldið því fram, að þau töldu sig hafa
rétt til að vera hlutlaus, þótt önnur samveldislönd eða