Skírnir - 01.01.1942, Blaðsíða 53
Skírnir
Brezka þjóðasamfélagið
51
en af þeim er meira en fimmtungur, eSa um 51 miljón,
„pariar", þ. e. utanstétta eða útskúfaðir menn.
Bretar hafa leitazt við að haga Indlands löggjöf sinni
með hliðsjón af öllu þessu, en málið er örðugt viðfangs.
Tvenn voldug pólitísk sambönd, Kongressflokkurinn, sem
Hindúar stofnuðu árið 1885, er Dufferin lávarður var
varakonungur, og samband Múhameðsmanna, sem stofnað
var síðar, hafa á stefnuskrá sinni fullkomið sjálfstæði
Indlands, en eru sín í milli mjög ósammála. Bretar hafa
neitað að gera stökkbreytingar á stjórnarfarinu, en smám
saman aukið sjálfsforræðið. 1 fyrri heimsstyrjöld studdu
Indverjar Breta drengilega með það fyrir augum að fá að
styrjöldinni lokinni fullkomna sjálfstjórn, og 1919 setti
brezka þingið ný stjórnarlög fyrir Indland, og það varð
sjálfstæður meðlimur Þjóðabandalagsins. Þessi stjórnar-
lög fullnægðu ekki óskum Indverja og sjálfstjórnarhreyf-
ingin magnaðist stórum. Brezku stjórninni varð ljóst, að
taka varð málið upp aftur þegar í stað, og 1927 var skipuð
konungleg nefnd til þess að rannsaka það frá rótum, og
skilaði nefndin áliti sínu árið 1930. Ráðstefna var síðan
haldin í London, sem Indverjar tóku þátt í, þar á meðal
Gandhi og fulltrúar frá furstadæmunum, til þess að búa
undir og semja frumvarp til nýrra stjórnlaga fyrir Ind-
land. Á ráðstefnunni náðist ekki samkomulag um nokkur
mikilvægustu atriðin, og tók stjórnin þá málið í sínar
hendur, og loks árið 1935 setti parlamentið lög um stjórn
Indlands. Með þessum lögum er Indland gert að sambands-
ríki með ábyrgri miðstjórn, en hin einstöku fylki eða
ríki hafa sjálfsforræði um sérmál sín. Sambandsríkið tek-
ur ekki að eins yfir sjálf hin brezku lönd Indlands, heldur
og furstadæmin. Þessi löggjöf hefur ekki komizt í fram-
kvæmd enn, nema að nokkru leyti, sérstaklega vegna and-
stöðu Kongressflokksins, og Múhameðsmenn eru einnig
óánægðir með lögin. Kongressflokkurinn, sem krefst fulls
sjálfstæðis þegar í stað, telur, að samkvæmt lögunum
verði sambandsstjórnin ekki raunverulega ábyrg, og flokk-
urinn er mótfallinn því, að furstadæmin séu innan sam-
4*