Skírnir - 01.01.1942, Blaðsíða 81
Skírnir
Einstaklingseðlið og vísindin
79
fyrrum forseti gat þess réttilega, að forsetarnir mundu
ekki allir hafa verið góðir æðri-skóla-kennarar. í reynd-
inni hafði nú samt fjórði hluti þeirra kennt í æðri skóla,
en samkvæmt þeim skilyrðum, sem nú gilda, fengju þeir
það ekki. Sem stendur er þetta ekki bagaleg frelsisskerð-
ing þessum mönnum, en sumir eru þeirrar skoðunar, að
aðferðir ríkisins við kennaraval leggi ofmikla áherzlu á
tiltölulega lítilvæg skilyrði. Sumir kennarar hafa sagt oss,
að þeim þætti nú meiri áherzla lögð á kennsluaðferðirnar
en góðu hófi gegndi, í samanburði við efnið, sem kennt er.
Altækar reglugerðir kunna að vera framkvæmdarvald-
inu hagkvæmar, en ofmikið einræmi getur orðið til þess,
að einstaklingseðlið verði ekki að gagni. Ef sömu lög væru
um öll Bandaríkin, þá hefði það nokkra kosti, en þau væru
þá ef til vill ekki eins vel sniðin eftir staðháttum og kynnu
að hamla nytsömum tilraunum um héraðsstjórn. Hinar
auknu samgöngur um heim allan virðast ekki óblandin
blessun. Þær verða til þess að steypa hugsanir vorar og
athafnir æ meir í sama móti, en um íeið verður það færra
og færra, sem einstaklingseðlið setur sitt mark á og þró-
un félagslífsins getur valið um.
Andspyrnan gegn einræðinu sprettur ekki eingöngu af
því, að það ræðst á réttindi manna, heldur og af því, að
það kúgar persónuleikann. Einstaklingseðlið er kjarni lýð-
ræðisins, lífeðlisgrundvöllur frelsisbaráttunnar. Þegar vér
berjumst fyrir einstaklingseðlinu, berjumst vér við hlið
náttúrunnar. Viðurkenning einstaklingseðlisins og alls,
sem það felur í sér, kemur oss sérstaklega við sem vísinda-
mönnum. Jafnvel þótt vísindin væru aftur ofsótt og rekin
í felur, eins og á miðöldum, mundu samt verða til ein-
hverjir hugdjarfir rannsakandi andar. En vísindin geta
ekki blómgast án hugsanafrelsis og málfrelsis.
Hvers vegna legg eg áherzlu á gildi einstaklingseðlisins
fyrir vísindin? Vegna þess, að eg held vísindin séu hin
mikla von mannkynsins. Þegar eg tala um vísindi og vís-
indamenn, þá ætti það að vera ljóst, að eg hefi ekki aðeins
sérfræðinga í huga. Hver sem með athugun eða tilraunum