Skírnir - 01.01.1942, Blaðsíða 83
Skíinir
Einstaklingseðlið og vísindin
81
það, hve margir af þúsundi hverju dóu í her Bandaríkj-
anna í mexikanska stríðinu, borgarastyrjöldinni og heims-
styrjöldinni fyrri. Dánartala þeirra, er sár fengu í orust-
um, var 15 af þúsundi í mexikanska stríðinu, 33 í borgara-
styrjöldinni og 53 í heimsstyrjöldinni. En dánir af sjúk-
dómsorsökum voru 110 af þúsundi í mexikanska stríðinu,
65 í borgarastyrjöldinni og 19 í heimsstyrjöldinni. Niður-
staðan er sú, að dánartalan í heild sinni lækkaði, var 125
af þúsundi í mexikanska stríðinu, 98 í borgarastyrjöld-
inni og 72 í heimsstyrjöldinni. Það er ánægjulegt að finna
það, að þeir, sem nú berjast fyrir því, að vér getum lifað
frjálsu lífi, leggja sig ekki í meiri hættu en forfeður vor-
ir, þegar þeir börðust líka fyrir land sitt, þó að hernaðar-
tækin séu nú orðin skaðsamlegri en áður.
Naumast er unnt að leggja ofmikla áherzlu á það, að
beztu gjafir vísindanna til mannkynsins eru ekki líkamleg
þægindi eða jafnvel léttir líkamlegra þjáninga. Fremst
meðal þeirra hugmynda, er leyst hafa menn úr læðingi, er
sú skoðun, að regla og lögmál eigi sér stað í alheimi og
þessa reglu megi finna með því að spyrja náttúruna sjálfa.
Slík trú var fátíð á miðöldum, er það, sem gerðist í nátt-
úrunni, var talið stafa af yfirnáttúrlegum orsökum: vind-
ar og stórhríðar af völdum illra anda, halastjörnur og far-
sóttir af reiði hins almáttuga við syndum spilltum heim
og rannsóknir á náttúrunni voru ofsóttar bæði af kirkju
og ríkisvaldi og taldar djöfulleg töfrabrögð og óguðleg
hnýsni í gerðir guðs. Kenning Kopernikusar víkkaði sjón-
deildarhring efnisheimsins og sýndi, að jörðin var lítill
depill alheimsins. Þróunarkenningin gaf heildarsýn yfir
hinn lífræna heim. Með uppgötvun ættgengisháttanna
varð unnt að gera sér grein fyrir, hvern þátt ættgengi og
umhverfi á í persónuleika einstaklinga. Þegar tilrauna-
aðferðinni er beitt með nægilegri gjörhygli, er hún dýr-
mætasta tækið, sem vísindin hingað til hafa skapað. Ef
menn skildu hana og notuðu í daglegu lífi, væri meira um
það vert en alla þá vísindafræðslu, er skólar megna að
veita.
6