Skírnir - 01.01.1942, Síða 192
190
Geir Gígja
Skírnir
sporöskjulagaður á karldýrunum. Veggjalýs eru mjög var-
ar um sig, einkum kvendýrin. Þær unna þurrk og hlýind-
um. Lífsstarfið er að miklu leyti undir hitanum komið.
Samt sem áður þola þær furðu mikinn kulda. Þær nærast
á mannablóði, en sækja einnig á hunda, ketti, mýs og
hænsn. Menn hafa álitið til skamms tíma, að þegar veggja-
lýsnar ættu ekki kost á að ná í blóð, gætu þær lifað á efn-
um úr jurtaríkinu eins og aðrar skortítur og myndu sjúga
næringu úr viði þeirra húsa, er þær væru í. Rannsóknir
síðari ára hafa þó sýnt, að þessi tilgáta er ekki rétt, heldur
lifa veggjalýsnar eingöngu á blóði.
Veggjalýsnar halda kyrru fyrir á daginn í rifum, undir
veggfóðri, bak við myndir og húsgögn, og koma ekki fram,
þegar bjart er, nema þær séu mjög hungraðar. Þeim líður
bezt við líkamshita mannsins, en verða eftir því fjörminni,
sem hitinn er lægri.
Þegar allt er kyrrt og hljótt um nætur, leita þær uppi
fólk í svefni. Þær geta hvorki stokkið né flogið og verða
því að láta sér nægja að fara fótgangandi og komast þann-
ig um fjóra metra á mínútunni. Þær kunna ráð við því,
þó að rúmin standi fram á miðju gólfi. Þá skríða þær upp
vegginn, eftir loftina og láta sig falla ofan á sængina.
Stundum koma þær niður á bakið með lappirnar upp í
loft, en geta þá reist sig við í einu snöggu viðbragði. Þær
hafa sograna, sem þær stinga inn í húðina, og með honum
sjúga þær blóð, þangað til þær eru úttroðnar eins og
blöðrur, ef þær fá að vera óáreittar. Til þess að blóðið
storkni ekki, á meðan þær sjúga, spýta þær munnvatni inn
í sárið. Fáum verður svefnsamt vegna óþolandi kláða og
sviða. Kringum stunguna kemur hvít bóla með roða um-
hverfis. Þegar veggjalýsnar hafa drukkið sig mettar,
hverfa þær í fylgsni sín aftur og þola nú að svelta lengi,
jafnvel í marga mánuði, einkum ef kalt er. Karldýrin geta
sogið allt að 4 mgr. af blóði í einni máltíð, en kvendýrin
7 mgr. Að kvendýrin sjúga meira blóð í einu en karldýrin
stafar sennilega af því, að auk þess að næra sinn eigin
líkama, þarf einnig aðdrátta til framleiðslu eggjanna. Þar