Skírnir - 01.01.1942, Blaðsíða 57
Skírnir
Brezka þjóðasamfélagið.
55
óbreytt sem lög fyrir Ríkjasamband Ástralíu (Common-
wealth of Australia). í sambandslögunum eru nýlendurn-
ar kallaðar ríki (States) og eru sameiginlegu málin færri
en í Kanada, en utanríkismál og tollmál eru sammál. Land-
stjóri krúnunnar hefur ráðuneyti sér við hlið, sem hann
skipar samkvæmt þingræðisreglum. Sambandsþinginu er
skipt í tvær deildir, öldungadeild, sem skipuð er 36 mönn-
um, 6 úr hverju fylki eða ríki, og fulltrúadeild, er sæti eiga
í 75 fulltrúar samtals, og er tala þeirra úr hverju fylki
miðuð við fólksfjölda þess. Breytingar á sambandslögun-
um skal bera undir þjóðaratkvæði. Ibúar sambandsríkja
Ástralíu eru nú um 7 miljónir.
Nýja-Sjáland. Þegar þetta land, sem er aðallega tvær
eyjar, kom til sögunnar í vitund Evrópumanna síðast á 18.
öld, var þar fyrir hraustur og greindur þjóðflokkur, er
Maori nefnist. Þjóð þessi átti í stöðugum ættflokka-styrj-
öldum, sem voru þess valdandi, að þjóðin var mjög fámenn
í hlutfalli við stærð landsins. Snemma á 19. öld komu trú-
boðar til landsins frá Evrópu. Hugðust þeir að stofna
kristið þjóðfélag meðal frumbyggjanna og lögðu kapp á
að bægja hvítum mönnum frá því að setjast þar að og
frá öllu samneyti við hina innfæddu menn. Þetta tókst
ekki, þangað komu og tóku sér bólfestu menn frá ýmsum
hvítum þjóðum, sjómenn, prangarar með áfengi og skot-
vopn, strokufangar frá Botany Bay og allskonar ruslara-
lýður. Urðu frumbyggjarnir að sæta hinum verstu búsifj-
um af þessum aðkomumönnum, og ef einhverjum lögum og
rétti átti að verða haldið uppi, varð menningarþjóð að
skerast í leikinn. Bretar voru í nágrenninu, þ. é. í þúsund
mílna fjarlægð á suðurströnd Ástralíu og hlutu að taka
þetta hlutverk að sér. Brezkur maður, Gibbon Wakefield,
stofnaði félag í Englandi í þeim tilgangi að koma á fót
skipulagsbundnum útflutningi til Nýja-Sjálands þeirra
manna, sem áttu við þröng kjör að búa heima fyrir, og
hin fyrsta brezka nýlenda var stofnuð þar 1837. Jafn-
framt þessu tók nýlendustjórn Breta að sér umsjón lands-
ins og sendi þangað landstjóra árið 1840, sem lýsti yfir