Skírnir - 01.01.1942, Blaðsíða 75
Skírnir
Einstaklingseðlið og vísindin
73
finna tvö blöð nákvæmlega eins, þótt ekki væri heimtað
meira en það, að allar skerðingar blaðanna stæðust á, er
þau voru lögð hvort yfir annað. Eg benti þá á, að munur-
inn á mynztri apaldlaufsins og t. d. eikarlaufs, stafaði
aðallega af ættgengu eðli þess, en hin mikla tilbreytni í
stærð og lögun laufa og tilhögun tanna á röndum þeirra,
væru breytingar á mynztrinu, er kæmu af mismun á um-
hverfinu, svo sem afstöðu laufsins til ljóss og skugga, með-
an það er að vaxa, lífsmagni greinarinnar, stöðu þess í
bruminu, meðan það er að þróast, og öðrum atriðum hins
innra umhverfis, er til greina kynnu að koma.
Með þetta í huga er það auðskilið, að sennilega geta
engin tvö tré í garði eða skógi nokkurn tíma verið alveg
eins, því að auk þeirra afbrigða, er breytingar umhverfis-
ins valda, eru þau afbrigði, er stafa af ættgengu eðli.
Þótt vér getum haft áhrif á útlit líkamans með umhverf-
inu, þá er það almenn skoðun, að vér höfum ekkert vald
yfir ættgengi þeirra. Þetta er ekki alveg satt. Skýrslur
frá þessum mánuði um fræplöntur af broddeplisillgresi,
sem vaxið hefir upp af fræjum, er grafin voru í jörðu um
þrjátíu og níu ár í landbúnaðardeild Bandaríkjanna í
Arlington, virðast sýna tíðari stökkbreytingar. Vér get-
um þó ekki sagt nákvæmlega fyrir fram um það, hvers
konar ættgengar breytingar koma fram við fyrningu
fræja og önnur áhrif. Af broddeplisillgresinu höfum vér
þó í sumum tilfellum notað litninga til þess að setja sam-
an nýjar hreinræktartegundir með fyrirfram ákveðnum
eiginleikum. Með því að taka til greina alla litninga þeirra,
höfum vér dregið úr hæfileika þeirra til kynblendni við
tegundir foreldranna og þykjumst því mega kalla þær
samsettar, nýjar tegundir.
Með einni aðferð hefir oss tekizt að stjórna ættgengi
af ásettu ráði og getum sagt fyrir með sæmilegri ná-
kvæmni eiginleika hinna nýju tegunda, sem koma fram,
þegar litningatala þeirra er tvöfölduð, með því að viðhafa
colchicine. í rannsóknarstöðvum vorum og annarra hafa
nýjar tegundir verið framleiddar með því að tvöfalda litn-