Skírnir - 01.01.1942, Blaðsíða 26
24
Fr. le Sage de Fontenay
Skírnir
sambúð þjóðanna á varanlegan, hjartanlegan og heiðar-
legan grundvöll. Við vitum það, að mikill hluti dönsku
þjóðarinnar er sannfærður um það, að sá heimur, sem við
bjuggum í fyrir styrjöldina, hafi verið fyrirmyndarheimur
og að við höfum verið friðrofarnir í þeim heimi. Þetta
verður því að eins hrakið, að menn hafi vítt sjónarmið
yfir samhengi atburðanna. Við skiljum það, að danska
þjóðin skuli snúa baki við hinum nýja heimi í harmi og
hlédrægni. Það væri ánægjulegt, ef unnt væri að láta
umskiptin þróast á eðlilegan hátt. En við lifum á bylting-
arinnar og ekki þróunarinnar tímum. Þess vegna beini
ég til danskra blaðafélaga minna þeirri ósk, að þeir reyni
að grafast fyrir rætur stórviðburðanna, þeirra afla, sem
allt knýja áfram, þeirra nýju hugsjóna, sem búa að baki
því, sem gerist. Veljið ykkur sjónarhól víðsýnisins, finnið
hina réttu röð verðmætanna, látið það vera stórt, sem stórt
er, og það smáa vera smátt. Sjáið mun þess hverfula og
þess varanlega".
Síðan talaði dr. Megerle um ,,það furðulega, næstum
því óskiljanlega, sem nú er að gerast í Rússlandi. Þýzka-
landi hefur verið það mikil ánægja, að einnig í Danmörku
hefur mönnum skilizt það, hversu mikið úrslitagildi bar-
áttan í austurveg hefur, og að danska stjórnin hefur lýst
yfir siðferðilegri samábyrgð sinni og Þýzkalands með því
að rjúfa stjórnmálasambandið við Moskvu. Þýzkaland,
sem á snjöllustu skipulagsgáfu heimsins, ætlar að hag-
nýta rússneskt landrými fyrir sig og bandamenn sína og
þær Evrópuþjóðir, sem sýna trúnað sinn við og starfandi
þátttöku í nýskipuninni“.
1 þessum og þvílíkum orðum er „hinu nýja skipulagi“
venjulega lýst. Það er ekki rakið í einstökum atriðum,
heldur er aðeins talað almennt um skipulagsbundið við-
skiptalíf undir forustu Þýzkalands, hver þjóð á að vera
þjóðleg heild í þjóðlegri samúð, flokkalaus og laus við
Gyðinga, jafnaðarmenn og kommúnista, og hver þessi
þjóð á að hlýðnast leiðtoganum, allir eiga að fara eftir
einni skipun, sem birtist í einskorðuðum blöðum, útvarpi