Skírnir - 01.01.1942, Blaðsíða 77
Skírnir
Einstaklingseðlið og vísindin
75
manns, svo sem kvef, getur í bili lamaS lyktarskynið. Þeg-
ar ilmur hefir orkað á mann um stund, finnst hann ekki
lengur. Lyktarþreytu má jafnvel vekja með svo litlu ilm-
magni, að ekki sé unnt að skynja það. Það er að líkindum
skýringin á því, að menn geta kafnað af gasi, ef það eykst
smám saman, svo að þeir skynja það ekki.
Lyktarskynið á ekki jafnmikinn þátt í því að veita
mönnunum þekkingu á umheiminum eins og sumum hinna
lægri dýra. Þó geta ekki allfáir menn þekkt einstaklinga
hvern frá öðrum af lyktinni, eins og hundar geta greint
einn frá öðrum af lyktinni einni. Þessi hæfileiki er tíð-
ari með börnum og helzt oft fram á fullorðinsár, en þá
dylst hann löngum sökum þess, að ekki þykir sæma að tala
um lykt af mönnum. Margir foreldrar hafa sagt mér, að
sum af börnum þeirra hafi í bernsku getað sagt, hver af
heimilisfólkinu átti vasaklút, sem þau höfðu rekizt á, ef
þau lyktuðu af honum, en þau hafi misst þennan hæfileika,
er þau komust á fullorðinsaldur.
Hugmyndasambönd eru sérstaklega sterk, þegar lykt á
í hlut, en þau koma til greina um allar skynjanir. Alla æfi
erum vér að mynda hugmyndasambönd, og persónuleiki
vor þróast á því að svara áhrifunum frá umheimi, en á
þann hátt birtist geð vort eða ógeð á hlutunum. Geð og
ógeð veldur miklu um breytni vora.
Þau dæmi, er nú hafa verið nefnd um áhrif ættgengis og
umhverfis, hafa verið tekin af bragði og lykt. Öll hin skyn-
in eru á líkan hátt undirorpin innri og ytri áhrifum. Eg
skal aðeins nefna meðfæddan mun á hæfileika manna til
að greina tóna, eins og Seashore leiddi í ljós, og að, eftir
því sem aldurinn færist yfir mann, minnkar tónhæðin eða
fjöldi tónsveiflanna, sem þeir geta greint við ákveðinn
tónstyrk. Fjöldi annarra atriða á sinn þátt í einstaklings-
eðli manna. Meðal þeirra eru blóðflokkarnir, meðfætt og
áunnið næmi og ónæmi fyrir sjúkdómum og meðulum, of-
næmið og viðtaka hormóna og bætiefna. Binet-prófið og
önnur gáfnapróf hafa leitt í ljós mun á andlegum hæfi-
leikum einstaklinga.