Skírnir - 01.01.1942, Blaðsíða 109
Skírnir
Njáls saga
107
liringlar það með líku hljóði og bjallan í húfu fíflsins, til
spotts — og aðvörunar.
Orð hefir verið á því gert um íslendingasögur og reynd-
ar öll fornrit vor, að þau séu furðu snauð að náttúrulýs-
ingum. Það er og rétt, að lítið er um náttúrulýsingar að
nútímahætti í ritum þessum, þótt aðeins bregði því fyrir.
En varlega myndi fyrir þá sök mega draga þá ályktun, að
íslendingar hinir fornu hafi ekki haft auga fyrir náttúru-
einkennum og náttúrufegurð með nokkrum hætti. Það er
kunnugt, að viðhorf manna gagnvart náttúrunni, fegurð
hennar og ógn, hefir miklum breytingum sætt og verður
því trauðlega fundinn mælikvarði um þetta, er hæfi jafnt
öllum tímum. Eg ætla og, að víðar verði að leita en í bók-
menntunum einum að vitnisburðum um þetta efni. Það er
t. d. efalaust, að örnefnin, heitin, sem þjóðin hefir gefið
stöðum víðs vegar um landið og mörg bera einmitt vott
um sterka og næma tilfinningu og djúpan skilning á feg-
urð landsins og einkennum þess, eru hér sízt ómérkara
vitni en staðir þeir í ritum, er taldir verða til náttúrulýs-
inga. Mér virðist þetta og fleira benda til þess, að munur-
inn í þessum efnum milli gamals tíma og nýs liggi fremur
í framsetningu en skilningi manna á fyrirbrigðum nátt-
úrunnar og næmi þeirra á fegurð hennar. Ætla eg, að
þetta fái stoð nokkra í athugun á hinum fornu mannlýs-
ingum. Þar sem náttúrulýsingum bregður fyrir, eru þær
jafnan næsta lauslegar, oftast fáorð tilsögn um staðhætti,
þar sem atburðir gerast, drög að leiksviði, þar sem atburð-
urinn og þó fyrst og fremst mannlýsingin er höfuðatriði.
Þetta á einnig við um Njáls sögu í heild sinni, þótt oft sé
vitnað til orða Gunnars: „Fögr er hlíðin —“, er einna
næst kemst því að mega kallast náttúrulýsing í nútíma-
skilningi og miklu nær en flest annað af því tagi, er sög-
urnar herma. Og þó er hér ærið langt bilið til Gunnars-
hólma Jónasar Hallgrímssonar!
Ekki er ofmælt, að eitt höfuðeinkenni fornbókmennta
vorra er það, hve mikil rækt er við það lögð að lýsa mönn-
um, gera grein fyrir skaphöfn og einkennum alls konar