Skírnir - 01.01.1942, Blaðsíða 21
Skírnir
Danmörk eftir 9. apríl 1940
19
búðir, þ. á. m. allir leiðtogarnir, Axel Larsen þjóðþings-
maður, Martin Nielsen ritstjóri og hinn kunni rithöfund-
ur Martin Andersen-Nexö. Handtaka hans vakti mikla
gremju, ekki sízt vegna þess, að hann er háaldraður mað-
ur, 72 ára. Hann var látinn laus skömmu seinna, vegna al-
menningsálitsins.
Ég get lýst nokkuð ástandinu í Danmörku, eins og það
var síðastliðið haust, samkvæmt því, sem sænskar heim-
ildir og aðrir segja frá því og meta það:
Það, sem einkum vekur athygli, segja þessar heimildir,
er starfsemin í dönsku menningarlífi til þess að verjast
erlendum áhrifum, sem eru studd vopnavaldi. Allt bendir
í þá átt, að upp á síðkastið hafi verið reynt að ota fram
slíkum áhrifum með meiri áfergju og harðsnúnari aðferð-
um en áður. Skráin um þær bækur, sem bannaðar eru,
einkum sænskar bækur, verður sífelt lengri og nær yfir
fleiri og fleiri bókmenntagreinar. Síðast hafa verið bann-
aðar bækur um Gyðingamál jafnframt því, sem nú er að
sjá, að þröngvað sé upp á Dani óþarflega miklum andgyð-
inglegum áróðri á Stúrmer-vísu. Á blöðunum virðist einnig
hafa verið tekið hörðum höndum undanfarið. Samt eru
blaðaumræðurnar í eindregnum dönskum stíl og ekki hef-
ur verið komið á samræmdum fréttaflutningi eins og í
Noregi.
Þó að rólegt hafi verið á ytra borðinu, hafa undir niðri
gerzt atburðir, sem líklega reynast býsna sögulegir seinna
meir. Þegar skjöl og skilríki verða lögð fram, þá verður
mönnum það máske ljóst, að danska ríkisstjórnin hefur
gert annað og meira en það eitt að láta undan ofureflinu.
Nokkrum grundvallaratriðum hefur verið haldið til
streitu. Eitt þeirra virðist hafa verið sett fram í samning-
unum síðla sumars 1940 og staðið síðan í rauninni. Það er
um sambandið suður á bóginn: að binda athafnafrelsi Dan-
merkur ekki lengur en fram að friðarsamningum, þegar
landið á, samkvæmt sáttmálanum frá 9. apríl, að losna við
erlenda vernd. Annað mikilsvert grundvallaratriði hefur
líka staðizt eldraunina: skipun dönsku stjórnarinnar verð-
2*