Skírnir - 01.01.1942, Blaðsíða 136
134
Ólafur Lárusson
Skírnir
venju, að gefa bæjarhrafninum af mat sínum. Eitt sinn
vildi hann eigi þiggja það, sem hún vildi gefa honum, og
fór svo að hún elti hann út fyrir tún. Féll þá skriða á bæ-
inn og beggja vegna við blettinn, sem bóndadóttir stóð á,
en því féll skriðan eigi þar, að þar var tjaldstaður Guð-
mundar biskups, er hann hafði vígt.107)
Guðmundur biskup er sagður hafa vígt Fróðastaðavað
á Hvítá í Borgarfirði. Drukknaði maður af honum á vað-
inu og varð það slys tilefni vígslunnar, en síðan hefir eng-
um manni hlekkzt þar á, þótt margir hafi farið ógæti-
lega.108) Hann vígði og fjallvegi sums staðar á landinu.
Gvendaraltari heitir flatur steinn á hjalla einum vestan í
Gufudalshálsi og segir sagan, að við stein þennan hafi
Guðmundur biskup sungið messu, er hann vígði veginn
yfir hálsinn.100) Sagt er og, að hann hafi vígt leið milli
Reyðarf jarðar og Fáskrúðsfjarðar, og heitir þar Gvendar-
hjalli og Gvendarsteinn, er hann söng vígslumessuna.110)
Arngrímur ábóti segir frá því, að hann hafi blessað sjó-
inn milli Grímseyjar og lands, „svá at engi um aldr man,
at þar hafi manni misfarizt, ef þar er útlátit, sem hann
lét, ok sú stefna höfð, sem hann hafði“.in) Er hér um að
ræða leiðina, sem biskup fór til Grímseyjar, og er nú
gleymt fyrir löngu, hvaðan hann lét út í þá för, en það
kemur eigi að sök. í þjóðtrú síðari tíma er blessun bisk-
upsins talin valda því, að engu því skipi berist á, er snýr
framstafni til eyjarinnar, en skut til lands.11-)
Fararheill er og tengd við Gvendarstein í Kaldbakslandi
á Tjörnesi, sem er grjóthrúga mikil, 3—4 metrar á hæð
og 4—5 metrar á breidd, rétt við gamla þjóðveginn til
Húsavíkur. Sagan segir, að í hrúgunni sé steinn, er Guð-
mundur biskup hafi falið sig undir, er óvinir hans veittu
honum eftirför, og hafi biskup þá blessað staðinn. Var það
venja, að þeir, sem fóru í kaupstað, köstuðu þar að stein-
um og gerðu bæn sína, og þótti það nauðsynlegt til þess
að ferðin tækist vel. Hélzt sá siður fram til 1900.113) Sýni-
lega er einhver forn helgi á þessum stað, en hitt er líklega