Skírnir - 01.01.1942, Blaðsíða 68
66
Björn Þórðarson
Skírnir
öllum vígstöðvum, óraleiðir frá heimalöndum sínum. Menn
frá samveldislöndum hafa átt sæti í stríðsstjórn heims-
veldisins, bæði í fyrri styrjöld og nú, og átt sæti í æðstu
herstjórnarráðum og verið hershöfðingjar yfir sameinuð-
um her frá ýmsum löndum samveldisins. Hermálin eru
vissulega mikilvægt tengiafl innan samveldisins, enda hafa
samveldislöndin fært hinum sameiginlega málstað dýrar
fórnir.
Samfelldur erindisrekstur. Samveldis-ráðstefnan, sem
haldin er með nokkurra ára millibili, venjulega fjögra, er
engan veginn nægileg til þess að halda við hinu persónu-
lega lifandi sambandi, sem hin margþættu trúnaðarsam-
skipti samveldisþjóðanna krefjast. Þess vegna hefir verið
stofnað til samfellds erindisreksturs milli þjóðanna með
öðrum hætti.
Þegar landstjórarnir, sem fyrrum voru ekki aðeins full-
trúar krúnunnar heldur og umboðsmenn brezku stjórnar-
innar, hættu að gegna síðarnefnda starfanum í samræmi
við það, að þeir ráku ekki lengur erindi yfirþjóðar, heldur
krúnunnar einnar, kom í Ijós nauðsyn þess, að í samveldis-
landinu væri stöðugt sendimaður, sem hefði með höndum
samskonar störf sem sendiherra. Brezka stjórnin hefur
því í höfuðborgum samveldislandanna menn, sem að vísu
eru ekki kallaðir sendiherrar heldur erindrekar (high
commissioners) og starfa undir samveldismálaráðuneyt-
inu. Störf erindrekanna eru venjuleg utanríkismál og
önnur viðfangsefni stjórnmálalegs eðlis. Þeim eru gerð
kunn öll meiri háttar milliríkjamál, og álits stjórnar sam-
veldislands er leitað með þeirra milligöngu. í verzlunar-
málum hafa erindrekarnir sér til aðstoðar verzlunarráðu-
nauta, sem standa undir verzlunarráðuneytinu.
Samveldismálin voru lögð undir sérstakan ráðherra
1925, og er ráðuneyti hans því einskonar utanríkismála-
ráðuneyti brezku stjórnarinnar gagnvart samveldislönd-
unum. Það heldur uppi hinu pólitíska sambandi við stjórn-
ir þeirra, miðlar þeim skýrslum, sem samveldislöndin
varða, sérstaklega frá utanríkismálaráðuneytinu og gagn-