Skírnir - 01.01.1942, Blaðsíða 124
122
Ólafur Lárusson
Skírnir
heilsulaug sú, sem Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson geta
um að sé á Reykhólum,41) en ekki kannast heimildarmaður
minn við það nafn. Þá er ennfremur Gvendarbrunnur í
landi Hyrningsstaða á Reykjanesi og Gvendarlækur á
Stað, sem Guðmundur biskup á að hafa vígt.38) I landareign
Laugalands á Reykjanesi eru tveir Gvendarbrunnar, ann-
ar í Grísárdal og hinn utar.38) Gvendarbrunnur er í Svefn-
eyjum.42) Á Barðaströnd eru Gvendarbrunnar á Vaðli og
í Skriðnafelli.43) Á Látraheiði milli Hvallátra í Rauða-
sandshreppi og Keflavíkur er lítil lind, sem heitir Gvend-
arbrunnur. Allt í kringum brunninn er aragrúi af smá-
vörðum, sem eru til orðnar á þann hátt, að það hefir orðið
venja, að hver, sem færi um heiðina í fyrsta sinni, hlæði
þarna vörðu. Sá, sem gerði það, átti aldrei að villast á
heiðinni, hversu oft sem hann færi yfir hana.44) Látra-
heiði var fjölfarin fyrrum af útróðramönnum og þeim, er
fóru í skreiðarferðir. í Tálknafirði er Gvendarbrunnur,
lind utan við túnið í Stóra-Laugardal, og annar í Fagra-
dal,43) en um Fagradal liggur ein fjölfarnasta leiðin milli
Tálknafjarðar og Arnarfjarðardala. Eggert og Bjarni
geta ennfremur um Gvendarlaug á Sveinseyrarhlíð, en
það örnefni mun nú týnt.45) í Arnarfirði sunnanfram eru
fjórir Gvendarbrunnar, einn á Neðrabæ í Selárdal, annar
í Ytri-Sneiðingum á Fífustaðaskriðum, hinn þriðji fyrir
neðan túnið í Otradal og hinn fjórði í Reykjarfirði í
Suðurfjörðum.43)
í ísafjarðarsýslu er Gvendarbrunnur á Rafnseyri.40)
Annar er í Bolungarvík, lind, sem sprettur undan barði í
landi Ytri-Búða. Lindin er töluverðan spöl frá bæjum, en
hefir verið vatnsból útróðramanna.47) Þriðji Gvendar-
brunnurinn er á Látrum í Mjóafirði.48)
tJr Strandasýslu þekki ég Gvendarbrunn í túninu á
Stað 1 Steingrímsfirði.48)
í Húnavatnssýslu er Gvendarbrunnur í mýrinni fyrir
sunnan túnið í Ási í Vatnsdal.49)
1 Skagafirði er Gvendarbrunnur í Goðdalalandi, annar
•er lind í túninu á Mælifelli, hinn þriðji í túninu á Ferju-