Skírnir - 01.01.1942, Blaðsíða 213
Skírnir
Ritfregnir
211
hvert ár, þegar ekki er um sérstakt ísabrot að ræða, megi sigla 320
mílur og lengra frá Islandi norður í höf. —
Eg get því miður ekki rakið þetta mál lengra. Eg hefi aðeins
viljað vekja athygli á þessari nýju og skemmtilegu bók Vilhjálms
Stefánssonar, sem eg geri ráð fyrir, að mörgum þyki fróðlegt að
lesa.
Það gefur sögu lands vors nokkuð annan svip, ef vér megum
hugsa oss, að hér hafi verið menn á ferð á dögum Alexanders
mikla eða jafnvel löngu áður, og hver veit nema einhverjar menjar
þeirra finnist hér á landi, áður en lýkur. Það er lika fróðlegt að
vita, hvort Columbus hefur ritað nafn sitt í gestabók íslands, hvort
sem það hefur haft nokkur áhrif á för hans til Vesturheims eða
ekki. En um það þegja heimildir. G. F.
Earl Porter Hanson: Stefansson. Prophet of the North. Harper &
Brothers Publishers. New York 1941.
Þetta er mjög vel rituð og skemmtileg bók. Hún segir frá upp-
runa Vilhjálms, uppvexti og námsárum, ferðum hans og landkönn-
un, og áhrifum þeim, er hann hefir haft á skoðanir manna á heim-
skautalöndunum. Frásögnin er Ijós og létt i spori. Og hún sýnir um
leið, að Vilhjálmur Stefánsson er réttnefndur „spámaður norðurs-
ins“, eins og titill bókarinnar segir. Af skarplegum athugunum,
rökréttri hugsun og reynslu sinni hefir hann séð fyrir, hvað getur
orðið og verða mun, þegar menn fá réttan skilning á eðliskostum
heimskautalandanna og haga framkvæmdum sínum samkvæmt þeim
skilningi. Vilhjálmur er innblásinn af heilbrigðri skynsemi, og því
eru spádómar hans um framtið heimskautalandanna farnir að ræt-
ast hver af öðrum. Hann er gæddur hinu sanna eðli brautryðjand-
ans, er sér veg, þar sem áður var talið ófært, og fer hann sjálfur,
hvað sem aðrir segja. Sagan sannar, að þjóðirnar hafa löngum litið
með beyg og hrolli til norðursins og hugsað sér
„allt ömurligt
útnorðr í haf,
frost ok kulda,
feikn hvers konar“.
Forfeður vorir létu það ekki á sig fá og kornust á sínum tima lengst
norður allra siðaðra þjóða. Það er nú gaman, að Vilhjálmur hefir
tekið upp merki þeirra með þeim ágætum, er raun gefur vitni, hefir
rutt burt úr hugum manna þoku rangra ímyndana um heimskauta-
löndin, sýnt þau í nýju og réttara ljósi og þar með gert þau byggi-
legri en áður fyrir mannkynið.
Eg sakna þess í þessari bók um Vilhjálm, að höf. minnist ekki á
bækur hans: The Three Voyages of Martin Frobischer, 1938, Un-
14*