Skírnir - 01.01.1942, Blaðsíða 84
82
F. A. Blakeslee
Skírnir
Vísindin hafa hjálpað til að frelsa mannssálina. Þau
hafa víkkað sjóndeildarhring trúarinnar og gefið henni
nýtt sjónarmið, laust við hina fornu, ófrjálslyndu efnis-
hyggjukenndu guðfræði, er menn leituðu sáluhjálpar sinn-
ar í eigingjarnri von um himnavist eða hræðslu við helvíti
og ofsóttu eða jafnvel drápu þá, sem ekki lutu valdi rétt-
trúnaðarins. Er trúin losnaði úr þessum fjötrum, fékk
hún frjálsara svifrúm til að leggja stund á hin miklu and-
legu verðmæti sín.
Vísindin hafa bægt á braut mikilli fáfræði og hjátrú,
en mikið er eftir. Á Pensylvaníustöðinni í New York keypti
eg nýlega sjö tímarit um stjörnuspáfræði. Eg komst að
raun um, að af einu þeirra seldust á mánuði 132000 ein-
tök, og var það þó ekki það tímaritið, sem seldist bezt, að
því er blaðasalinn minn sagði mér. Lesendur þessara
stjörnuspáfræðirita eiga heima í lýðræði voru og hjálpa
til að mynda stefnu stjórnar vorrar. Önnur dæmi þarf
ekki að nefna til þess að sýna, að aðferð vísindanna hefir
ekki enn gagnsýrt land vort.
Ef vér lítum á tilraunir liðinna tíma til að bæta menn-
ina, þá er það ljóst, að góður ásetningur er ótraustur mæli-
kvarði á gagn mannkyninu til handa. Mælikvarði biblíunn-
ar — „Af ávöxtum þeirra skuluð þér þekkja þá“ — er frá
sjónarmiði líffræðinnar heilbrigð kenning og enn þá bezta
prófið. Tilraunirnar til að bæla niður sjálfstæða hugsun
og rannsókn á náttúrunni á miðöldum og þangað til fyrir
ekki alllöngu í voru landi, voru sprottnar af göfugum
hvötum, en þær seinkuðu menningunni um margar aldir.
Krossferðirnar höfðu háleitan tilgang, en Iítilfjörlegt
markmið: að ná tómri gröf, með allt of Iitlum skilningi á
kenningum hans, sem legið hafði í gröfinni.
Meðan plágan gekk á seytjándu öldinni, er tuttugu og
fimm miljónir manna eða fjórði hluti íbúa Evrópu dóu
úr þessari ægilegu drepsótt, voru eflaust til, eins og vera
átti, sjúkrahús og önnur skipuleg viðleitni til að hjúkra
sjúkum og deyjandi mönnum. Vér getum gert oss í hugar-
lund, hve lítið hefði verið skeytt um bæn um fjárveitingu