Skírnir - 01.01.1942, Blaðsíða 187
Skírnir
Skaðsemi skordýranna
185
húsbukkar, sem valda stjórtjóni á húsum, en þeira hafa
ekki borizt hingað enn þá. Er þeim útrýmt með gaseitr-
um eða þurrum hita. 1 60 stiga hita á C. er talið öruggt að
lirfur og egg trjábukkanna drepist.
3. í matvælum og fatnaði.
Matbaunir þær, sem flutzt hafa til landsins á undan-
förnum árum, hafa stundum verið meira eða minna
skemmdar af bjöllum þeim, sem nefndar eru ertubjöllur.
Svo mjög hefur kveðið að skemmdunum, að í sýnishorn-
um, sem ég hefi skoðað, hefur stundum allt að 50% af
baununum verið meira eða minna holar innan af völdum
þessara dýra. Það liggur í augum uppi, að matbaunir svo
skemmdar eru ekki mannamatur. Er hér því um allmikið
tjón að ræða. En hvers vegna eru þessar bjöllur lokaðar
inni í baununum og baunirnar heilar utan um þær? Þannig
hafa ýmsir spurt, og skal því nú svarað.
Ertubjallan telst til þeirrar bjölluættar, sem nefnist
fræbjöllur, það er þeim bjöllum sameiginlegt að ala af-
kvæmi sín upp innan í fræjum jurta, einkum belgjurta.
Ertubjöllurnar sækja í blóm þessara jurta, og um það
leyti, sem belgjurtirnar eru aldinbærar, verpa bjöllurnar
eggjum sínum utan á hina ungu belgi, þó aðeins á mat-
baunir — gular ertur (Pisum sativum L.). Áður en langt
um líður kemur lirfa úr hverju eggi. Lirfurnar bora sér
inn í belginn og inn í baunirnar. Götin á belgnum og baun-
unum gróa saman aftur, og aldrei er nema ein lirfa í
hverri baun. Næringin í bauninni næggir lirfunni og meir
en það. Lirfan nagar gang eftir bauninni, sem nær að
minnsta kosti með annan endann út að fræskurninu, sem
þar litur út eins og kringlóttur „gluggi“ og gerir hina
skemmdu baun auðþekkta. Sé glugginn opnaður, sést lirf-
an, púpan eða hin fullvaxna bjalla, allt eftir því, hvað
þróun dýrsins er langt á leið komin.
Bjöllurnar lifa áfam í baununum eftir uppskeruna á
haustin, yfir veturinn og jafnvel lengur. Þær flytjast með
baununum-til fjarlægra héraða og annarra landa. En að