Skírnir - 01.01.1942, Síða 194
192
Geir Gígja
Skírnir
Veggjalýs eru hættulegir smitberar, sem borið geta með
sér næma sjúkdóma, svo sem taugaveiki, miltisbrand o. fl.
Um útbreiðslu veggjalúsanna eru enn ekki fullnægj-
andi upplýsingar fyrir hendi, en samkvæmt heilbrigðis-
skýrslum og upplýsingum þeim, sem ég hefi aflað mér á
undanförnum árum, vitum vér þó, að þær hafa verið hér á
landi frá því fyrir aldamótin síðustu og hafa fundizt í
þessum tíu sýslum:
Austur-Skaftafellssýsla: Á einum bæ í Nesjum í Horna-
firði, frá því fyrir aldamót og til ársins 1923 ( og líklega
víðar).
Vestur-Skaftafellssýsla: Tveir bæir í Fljótshverfi.
Árnessýsla: Einn bær í Grímsnesi.
Gullbringusýsla: Verbúðir í Sandgerði, eitt heimili í
Hafnarfirði og nokkur hús í Reykjavík.
Kjósarsýsla: Einn bær í Mosfellssveit og 1 bær í Kjós.
Barðastandarsýsla: Einn bær í Geirþjófsfirði, einn bær
í Dalahreppi.
Vestur-ísafjarðarsýsla: Einn bær í Þingeyrarhreppi,
fimmtán bæir í Mýrahreppi (veggjalýs hafa verið á einu
þessara heimila síðan fyrir aldamót), eitt heimili í Ön-
undarfirði, hús á Suðureyri og einn bær (eða fleiri) í
Súgandafirði.
Norður-ísafjarðarsýsla: Á einum bæ (eða fleiri) í Skut-
ulsfirði og í húsum á ísafirði.
Strandasýsla: Nokkrir bæir í Bjarnarfirði og hús á
Hólmavík.
Eyjafjarðarsýsla: Nokkur hús á Akureyri.
Á mörgum þessum heimilum, sem hér greinir, hefir
fólkið reynt ýms meðul til þess að losna við veggjalýsnar,
en flestar tilraunirnar hafa lítinn árangur borið. Þó mun
lúsunum hafa verið útrýmt af nokkrum heimilum. Á hinn
bóginn eru allmiklar líkur til þess, að veggjalýsnar séu
miklu útbreiddari en hér er talið. Sumt fólk, sem hefir
verið svo óheppið að fá veggjalýs á heimili sín, vill sem
minnst láta á því bera, vegna þess að það álítur, að það
sé jafnmikil vanvirða að hafa veggjalýs og að vera lús-