Skírnir - 01.01.1942, Blaðsíða 37
Skírnir
Danmörk eftir 9. apríl 1940
35
varlega misbeitingu konungsvaldsins". T. d. tók konung-
urinn þá dr. Vilhelm la Cour sagnfræðing og Arne Sören-
sen rithöfund í áheyrn, áður en þeir áttu að afplána hegn-
ingu fyrir bók, þar sem la Cour hafði kvatt dönsku þjóð-
ina til þess að streitast gegn þýzkum áhrifum, og gert það
eftir fyrirmynd hins fræga þýzka heimspekings Fichte, er
hann hvatti Þjóðverja til mótspyrnu gegn hernámi Napo-
leons, í ræðum til þýzku þjóðarinnar í Berlínarháskóla
1808. I annað skipti sendi konungurinn alúðarkveðju
nokkrum lögregluþjónum, sem særzt höfðu í viðureign við
danska nazista.
Konungurinn er einingarmerki dönsku þjóðarinnar og
allir reiða sig á vörn hans fremur en nokkurs annars. Mig
langar til þess að taka upp nokkra ræðukafla konungsins
úr þeim ræðum, sem síðast er frétt um:
Á stúdentamóti í Kaupmannahöfn í nóvember 1941 lét
hann í ljós innilega ósk um það, að geta sett landið frjálst
í hendur syni sínum, „eins og ég og forfeður mínir tóku
við því, og ég vona, að það haldi áfram að vera frjálst í
höndum afkomenda hans“.
í nýjársræðu til dönsku þjóðarinnar sagði konungur-
inn m. a.: „Enn er ár á enda runnið á mestu myrkratím-
um í sögu föðurlands okkar, ár, sem fyllir hugskot okkar
djúpum kvíða. Við þráum þann dag, þegar fáni okkar
blaktir aftur yfir frjálsri Danmörku. Hlustið ekki á orða-
sveim. Við þjónum landi okkar bezt með samheldninni.
Það traust, sem mér hefir verið sýnt á margan hátt á þess-
um erfiðu tímum, hefir verið mér mikil örvun, og ég er
af hjarta þakklátur fyrir það. Ég mun einnig framvegis
kosta kapps um það, að bregðast ekki því trausti“.
Sú er ein af mörgum sönnunum fyrir því trausti, sem
borið er til konungsins, að til hans er beint öllum óskum
og kröfum um frelsi og sjálfstæði Danmerkur. Þegar þjóð-
ernistilfinningin þarf að fá útrás, þá hittast allir á hallar-
torginu hjá Amalienborg. Til konungsins beinist hugur-
inn, þegar fólki finnst hættan nálgast. Menn reiða sig á
réttlætistilfinningu hans og siðferðisþrek, riddaraskap
3*