Skírnir - 01.01.1929, Page 16
10
Handritamálið.
[Skirnir
tilvitnunum þeim, sem hann gefur, verður ekki beint séð,
að þær hafi verið þar með. í úttektargerð Skálholtsstóls
1722 er sagt, að bækur þær, er Árni fékk, hafi verið
skræður og sundurlaus blöð. Ef til vill hefur sumt af því,
sem hann fékk, verið þannig á sig komið, en það var langt
frá því, að svo væri um allt; og eru því orðin í úttektar-
gerðinni æði villandi. Annars telur Kaalund, að Árni hafi feng-
ið frá eða fyrir aðstoð Vídalins biskups alls 35 skinnhandrit
Á Hólum sat þá Björn Þorleifsson, góður vinur Árna
og honum jafnráðþægur sem Skálholtsbiskupinn, en hann
hafði minna úr að spila af handritum en Vídalín, enda
verður ekki séð, að Árni hafi fengið nokkuð frá honum að
ráði af því tæi, en af skjölum fékk hann mikið. Af bréfi
Árna til Þormóðs frá 1698 sést það, að þá hefur hann
verið búinn að fá frá báðum biskupsstólunum öll skjöl
þeirra, og á hann eflaust þar við öll skjöl eldri en siða-
bótina eða fram að 1550. Þannig hafði Árni viðað að sér
miklu af handritum og skjölum, þegar hann var sendur
til íslands.
Framan af hafði Árni átt allerfitt uppdráttar þar til um
aldamótin, þegar hann var gerður að launuðum prófessor.
En þá kom brátt kallið frá konungi, og var hann sendur
til íslands sem erindreki konungs ásamt Páli lögmanni
Vídalín, aðallega til að semja jarðabók yfir landið. Árna
var víst ekki mjög gefið um að fara þá ferð, en hún kom
honum þó að góðu haldi fyrir handritasöfnun hans. í erindis-
bréfi þeirra frá 22. maí 1702 var ein grein (29.) viðvíkjandi
skjölum, og set eg hana hér í þýðingu Árna sjálfs: »Ef
og þar í landinu hjá dómkirkjunum, klaustrunum, eða hjá
particulier (einstaka) mönnum kynni að vera í geymslu
nokkur document, sem til einnrar eða annarar upplýsingar
kynni að þurfa, þá skulu þeir, sem þau í geymslu hafa,
þau sömu án undandráttar framleggja«. Greinin hefur auð-
sjáanlega ■ verið sett í bréfið eftir ráðum Árna, enda höf-
um við vitni um það, að hann kunni að veifa henni, ef
nokkur mótspyrna var sýnd. I þessari stöðu komst hann
í kynni við fjölda manna víðsvegar um land, og var jafnan