Skírnir - 01.01.1929, Page 51
Skírnir] Daði Haildórsson og Ragnheiður Brynjólfsdóttir. 45
sem komin er frá henni til vor, mætasti minjagripur ald-
arinnar — Passíusálmar Hallgríms Péturssonar í eiginhand-
arriti. Hálfdan Einarsson hefur skilað oss fullri heimild að
því í hendur (JS 272, 4to og sálmaútg. 1780).
Hallgrímur Pétursson sendi Ragnheiði þetta handrit í
maí 1661 »til eins góðs kynningarmerkis í Christi kærleika«.
Menn hafa viljað gefa Brynjólfi Sveinssyni allan heið-
urinn af þessari tileinkun skáldsins. Ég er nú ekki eins
sannfærður um það og margir aðrir, að Brynjólfur biskup
hafi kunnað að meta sálmaskáld vort að verðleikum, þó
að verksvið mitt hér banni mér því miður að hreyfa við
þvi máli eins og mörgu öðru. En fram hjá hinu verður
ekki gengið í þessu sambandi, að í tileinkun skáldsins til
Ragnheiðar kemur fram hvortveggja: persónulegt þakklæti
og persónuleg viðvörun. Hann sendir þrjú önnur afrit til eig-
inkvenna vina sinna í Einarsnesi, Hítardal og Kaldaðarnesi —
okki til dætra þeirra, upp kominna. Af hverju sendir hann þá
ekki afrit sitt i Skálholt til biskupsfrúar? Af því einu vitan-
lega, að hann getur ekki gengið fram hjá Ragnheiði. Tileink-
unin ber með sér, að hann á henni gott upp að inna, því að
orðin: »til eins góðs kynningarmerkis í Christi kærleika«
merkja á voru máli þetta og ekkert annað: »með þakklæti
fyrir góða og kærleiksríka viðkynning«.
Aminningin, sem skeytt er aftan við sjálfa tileinkunina:
»Mikill er munur heims og himins.
Sá má heimi neita, sem himins vill Ieita« —
bendir til þess •— eins og margt siðar og orð biskups sjálfs
hvað eftir annað — að Ragnheiður hafi verið glaðvær
heimskona, sem ekki hafi hneigzt neitt til að lifa lífi annars
heims á meðan hún átti heima í þessum.
Ragnheiður Brynjólfsdóttir hefur verið góð sálmaskáldi
voru, vér skulum ekki draga af henni þakklæti hans sjálfs.
Og fyrir þennan hug hennar til hans hefur oss verið skil-
uð í hendur kjörgrip, — sem geymdur mun verða um aldir
í eldheldum skáp.
En frá þessu efni verðum vér að hverfa til að taka
upp söguþráðinn milli Ragnheiðar og Daða.