Skírnir - 01.01.1929, Síða 76
70
Daði Halldórsson og Ragnheiður Brynjólfsdóttir. [Skirnir
tungu. Aðrar mægðir við Bræðratungufólk ætlaði biskup
Halldóri syni sinum. Sigríður Hákonardóttir (Gíslasonar og
Helgu Magnúsdóttur) var heitin biskupssyni áður hann
sigldi til Englands (sbr. Brfb. 1. ág. 1667).
Halldór Brynjólfsson var ólíkur þeim báðum að gáfum,
föður sínum og systur. Hann var tornæmur í skóla, og
snemma vínhneigður, og var af þeirri ástæðu sendur til
Yarmouth undir ströngu eftirliti íslenzks kaupmanns þar,
sem kvæntur var enskri konu. Að líkindum hefur hann þó
stundað nám við dómskólann í Yarmouth, sem var nafn-
fræg stofnun á þeirri tíð. Hann var þar 4 ár, teptist síðustu
árin af ófriðinum milli Hollands og Englands.
En 10. júní 1667 fær biskup bréf heim i Skálholt á
latínu frá sóknarpresti í Yarmouth, þar sem honum er til-
kynt lát sonar síns. Hann dó af »lungnavisnun« (berkla-
veiki) 25. des. 1666.1)
Með dauða þessa sonar var biskup orðinn barnlaus.
Harmur hans er þungur, hann biður guð að gefa sér »sinn
h[eilaga] anda þetta mótlæti kristilega og þolinmóðlega að
umbera«. í þessum raunum sínum láta þá biskupshjón
samstundis senda til Hruna og sækja þangað son Ragn-
heiðar, sem nú er á sjötta árinu. Og 19. júní ritar biskup
3 samhljóða bréf til allra bræðra sinna á Vestfjörðum, og
biður þá leyfis til að ættleiða þennan dótturson sinn, »með
því að ég er orðinn einmana og barnlaus sem þér allt vit-
ið, hafandi ekki eftir af mínum niðjum og afkvæmi utan
einn dótturson laungetinn, Þórð Daðason að nafni . . . þar
fyrir leita ég nú allra yðar bræðra minna . . . hverja hugg-
un þér viljið mér mótlættum krossburðarmanni, en hverja
miskun þessu fátæka einstæðingsbarni, veita og unna af
mínum fémunum«. Hann biður þá að koma til móts við
sig á Reykhólum, því lengra vestur yfir fjöll og firði treysti
hann sér ekki til að færa barnið. Bræður hans taka mis-
jafnt undir það, og treysta sér ekki allir til Reykhóla, svo
>) Ekki 15. des. eins og biskup heldur af misskilningi á orðun
um »stilo Anglico«, sami stíll var í báðum löndum.