Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1918, Page 20
14
Stephan G. Stephansson: Vorönn.
[ IÐUNN
Þú mátt hafa í heilli sveit
hundraðs-gjald af hverju setri.
Starfi mínu’ ei stika reit
stærri en gæti skilað betri.
Verði gott af þínu, þér,
þú sem ræður herragörðum!
Ekki vil eg eiga mér
áhyggjur á mörgum jörðum.
Forðum lagðist Æsi á
iðjuleysi, svo þeir hærðust.
Iðunn greip upp eplin þá,
æsku-djörf, — í lag þeir færðust. —
Hebra-Jahve heyrðu mér!
— Hygg ei, ég sé við þig feiminn —:
Sælust, veit ég, varð hún þér
vikan sú, er skópstu heiminn.
Ég get næstum ætlast á
unað þinn af verki þínu,
vott þann um að vita og fá
verðsetning á starfi sínu:
Þegar augum Eden frá
ung-hjón fyrstu’, er greina sögur,
lyftu morgun-sól að sjá,
sáu þau gjört, hvað hún var fögur.
Eflaust sástu’, að ei var gott
iðjuleysið skógar-hjóna,
svo þú rakst þau bara brott
bæði, til að slá og prjóna.
Þó þú létir mynd og mót
manns og konu óbreytt vera,
sú var auka-endurbót
er þér fanst að yrði’ að gera.