Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1918, Page 57
ÍÐUNN]
I>j''öingar úr rússnesku.
51
Fegurð — í rósknappa brestandi böndum,
er boða oss vortiðar mátt.
Fegurð — í bláhvolfsins breiðfaðmi víðum
með bragandi stjörnum um kvöld.
Fegurð — í augunum bládjúpum, blíðum,
með blikandi hugsjónafjöld.
Fegurð — í langkossum Ijúfum í hljóði,
er loginn um æðarnar fer.
í vísindum, sannleik, í andakt, í óði,
í áslinni — fegurð i þér.
Myndun íslands og ævi.
Eftir
Guðm. G. Bárðarson.
I. Inngangur.
Efni þessa greinarkorns er býsna umfangsmikið.
lJvi er ætlað að fjalla um myndunarsögu landsins
og ævisögu þess frá ómunatíð fram á þá tíma, er
sögur hefjast. líg verð því að fara lljótt yfir sögu
og geta þess eins, sem merkast er.
Flestir hafa meiri eða minni hugmynd um það,
bvernig land vort lítur út nú á timum. En færri hafa
bugleitt það, hvilíkan óralíma það hefir tekið að
skapa hólma þennan, er vér nú byggjum, né heldur
íbugað það, hve mikið efni og orku náttúran hefir
lagt fram frá fyrstu tið til að hlaða undirstöðurnar
að óðulum vorum og móta landið, eins og það nú
kemur oss fyrir sjónir.
4’