Skírnir - 01.01.1942, Síða 172
170 Þorsteinn J. Jóhannsson Skírnir
sinna, t. d. í viðskiptum við aðra, og er það ekki lítill kost-
ur hjá hverjum einum. Við, sem komin erum á efri ár,
getum bezt borið um það, þegar við berum það saman við
nútímann. Fámennið og náttúran sjálf gerði líka sitt til
að festa þessa einföldu trúarskoðun og halda henni við,
þar sem svo fátt glapti fyrir, unglingurinn gat hugsað í
næði. Þekkingarsviðið takmarkað, ýmsum kerfisbundnum
trúarkreddum mátti koma þar við með góðum afleiðing-
um, eins og reynslan hefir sýnt, að margt eldra fólk hefir
;sína rótfestu frá sínum unglings- og uppvaxtarárum og
orðið ágætir þjóðfélagsborgarar. En þó að þetta hafi get-
að gefizt sæmilega vel fyrr á tímum, meðan þekking var
mjög lítil meðal almennings, og engin gagnrýni átti sér
stað eða mátti eiga sér stað í trúarefnum, prestarnir álitn-
ir óskeikulir á því sviði, þá er ekki þar með sagt, að þetta
geti alltaf svo til gengið. Það vita allir, að stórkostlegar
byltingar hafa átt sér stað á síðustu áratugum bæði hér
á landi og annars staðar, bæði í efnislegum og andlegum
efnum. Það eru ekki svo ýkjamargir áratugir síðan að
flestallir landsmenn bjuggu í sveitum landsins; nú býr
meira en helmingur fólksins í kauptúnum og kaupstöðum.
Skólaskyldu barna hefir verið komið á, sem annast á
uppeldi æskunnar jafnt í sveitum sem í fjölmenninu, enda
eru heimilin nú orðin tiltölulega fleiri, en mannfærri, og
búa við allt aðrar aðstæður en áður. Möguleiki til ýmis-
konar lærdóms er miklu meiri og fjölþættari, enda not-
færður af mörgu ungu fólki á einhvern hátt nú orðið, þó
að ávöxturinn verði stundum hæpinn til framfara. Fyrir
nokkrum tugum ára bjuggu íslendingar undir yfirstjórn
útlends ríkis, nú hafa þeir fengið sjálfir stjórnartaumana
í sínar hendur með fullri ábyrgð á gjörðum sínum; nú er
ekki hægt að kenna öðrum um. Það er svo margt fleira,
sem hefir gerbreytzt hér á landi síðastliðin 40—50 ár, að
hreina byltingu er um að ræða, þó að ég fari ekki frekar
út í það.
Um þá hlið uppeldismálsins, sem snýr inn á við, and-
legu hliðina, ætla ég að fara nokkrum orðum, enda er mest