Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.06.1927, Page 161
Œtmarit
Þjóðræknisfélags Islendinga.
IX. ÁRGANGUR.
Tilgangur félagsins er:
1. Að stuðla að því af fremsta megni, að íslendingar megi verða sem
beztir borgarar í hérlendu þjóðlífi.
2. Að styðja og styrkja íslenzka tungu og bókvísi í Vesturheimi.
3. Að efla samúð og samvinnu milli ís'lendinga austan hafs og vestan.
Þetta er sá félagsskapur meðal íslendinga í Vesturheimi, er aðallega
byggir á þjóðernislgum grundvelli, á svipaðan hátt og ýms þjóðernis-
félög hér í álfu, svo sem “The United Scottish”, “Sons of England og f 1.
Hver einasti ísilendingur í þessu landi ætti að standa í félaginu. Árs-
gjald fyrir fullorðna $1.00, unglinga frá 10 til 18 ára 25 cent, barna
•innan 10 ára aldurs 10 cent. Hver skilvís félagsmaður, er greiðir $1.00
árstillag, fær Tímaritið ókeypis.
Markmið félagsins er, að vinna að framförum og samheldni meðal
íslendinga hér í álfu, og að hjá'lpa til þess, að unglingum gefist kostur
á að læra íslenzku, eftir iþví sem ástæður foreldranna kunna að leyfa.
Allar upplýsingar um félagið veitir “Félagsstjórnin” og má skrifa
til hennar. InngangseyPir og ársgjöld sendist “Fjármálaritara”, en
áskriftargjald að Tímaritinu “Skjalaverði”.
Þjóðræknisfélag íslendinga í Vesturheimi.
Winnipeg, Manitoba.
JAMIESON » BROWN
LIMITED
GeneralInsurance Agents
Fire and automobile
201 McArthur Bldg. WINNIPEG, Man.
Phone 23 828