Jörð - 01.12.1948, Blaðsíða 20
18
JÖRÐ
Þau voru þarna af hans völdum komin út í sólskinið — að
minnsta kosti í bili.“
Guðmundur G. Hagalín á það sameiginlegt með Einari
gamla á Móeyri, að liann hefur unnið að því í lífsstarfi sínu
að leiða íslenzka alþýðu, íslenzku þjóðina, út í sólskinið. Hann
hefur bara unnið markvíst að því, ekki óafvitandi eins og
Einar.
Og trúað gæti ég því, að Hagalín mundi farast eitthvað svipað
og Einari karlinum, ef hann stæði andspænis hinum dimmu
dyrum. Einar vildi fá að hafa „viðhaldið“ sitt með sér yfir um,
ef honum kynni að leyfast að fíra á einhverjar ókindur. Haga-
lín mundi þykja sæluvistin dauflegri, ef hann fengi ekki að
hafa pennann sinn hjá sér til að „fíra á“ yfirdrepsskap, áþján
og ódrengskap — meðan slíkar ókindur dafna í þessum heimi.
Z----------------------------:------------------------•------------'"N
Ragnar Jóhannesson er fædclur 14. maí 1913 f Búðardal, Dalasýslu.
Foreldrar: Guðrún Halldórsdóttir og Jóhannes Jónsson. Stúdent frá Ak-
ureyri 1934. Kandidat í íslenzkum fræðum frá Háskóla Islands haustið
1939. Meðritstjóri Fálkans 1939-41. Blaðamaður við Alþýðublaðið 1941
—42. Fulltrúi útvarpsins 1942—47. Síðan forstöðumaður gagnfræðaskólans
á Akranesi. Hefur tekið saman nokkur safnrit (t. d. „Afmælisdagar" og
[með mag. Sigurði Skúlasyni] „Til móður minnar"), skrifað barnabækur
og þýtt skáldsögur (t. d. „Jane Eyre").
v_________:--------------------------------------------------------J
Hagalín fimmtugur
(Niðurlag frá bls. 2)
að við liggur, að honum sé viðfangsefnið bví eðlilegra st m bað er
stærra. Hann hefur persónuleg sambönd við ýmsa af helztu rithöf-
undum Norðurlanda og enda víðar um lönd, enda með afburðum víð-
lesinn og fylgist nákvæmlega með því, sem gerist í heimsbókmennt-
unum, eins og lesendum JARÐAR mætti vera kunnugt. Ósérhlífnari
maður væri vandfundinn cða heilli hugsjónum sínum, — en lífið sjálft,
heilbrigðin og sannleikurinn, þroskinn á þessari undirstöðu, frelsið,
manndómurinn og samhjálpin — þetta eru hugsjónir Hagalíns. Og
mynd HALLDÓRS PÉTURSSONAR, sem fylgir þessum fáu orðum
og gerð er fyrir JÖRÐ vegna finnntugsafmælisins, gefur sýn inn í ein-
lægni Hagalíns. Fylgi honum allar heillir!