Jörð - 01.12.1948, Blaðsíða 196
194
JÖRÐ
telur Lysenkó sérhverja gagnrýni á sig árás á Ráðstjórnarríkin.
„Líffræðileysa" er samnefni yfir hagfræðilegar aðferðir,
huglæg hugtök, huglægar röksemdaleiðslur og sitthvað fleira,
— þegar því er beitt í sambandi við líffræði. Sé einhver af kenn-
ingum Lysenkós hrakin með tilraunum, svarar hann því til,
að tilraununum hljóti að vera ábótavant, en hvað sem því líði,
þá eigi hagfræðilegar aðferðir og stærðfræði engan aðgang að
arfgengisfræði.
Jafnframandlega verkar það á vestrænan mann að sjá ná-
kvæma sálfræðilega greiningu á hvötum andstæðings í arfgengis-
fræðiágreiningi, — en slíkt er meginatriði í hrakningu mál-
staðar hans í Ráðstjórnar-Rússlandi. Lysenkó hrekur líka gagn-
rýni með yfirlýsingu um, að hún sé sýnilega til þess eins fram
sett að rugla hann. Vavílov var ásakaður um að nota danvínsk-
ar setningar beinlínis til að dylja and-darwínsku sína. Um
Mendel þarf ekki vitna við, því að hann var munkur; Men-
delslögmál er „klerkaafturhald". Og svo framvegis. „Borgari",
„þýlundaður aðdáandi erlendra hluta“, „fölsun", „talsmaður
hinnar saurgandi afturhaldssiðmenningar hinna borgaralegu
Vesturlanda“ eru orðatiltæki, sem hvorki þykja utangátta né
svæsin í góðum og gildum vísindaritum á rússneska vísu.
LOKS er að geta nytsemdarsönnunarinnar. Það er talin
sönnun fyrir vísindalega réttri niðurstöðu, að hún beri
nytsemi að ávexti, eins og hún liggur fyrir og án tafar. Það, sem
ekki ber slíkan ávöxt, getur ekki verið vísindalegur sannleikur.
Annars er ákaflega erfitt fyrir vestrænan arfgengisfræðing
að fylgjast með framsetningu Lysenkós, því að mörg af orða-
tiltækjum lians eru óþýðanleg á fagmál. Auk þess er hann í
sífellu að skilgreina af nýju hugtök, er þegar hafa fengið fast-
mótaða þýðingu, en notar þau svo engu síður í hinni viður-
kenndu merkingu.
Það er helzt ekki unnt í einni venjulegri grein að gera ljóst,
hvað það er í einstökum atriðum, sem um er deilt í sjálfri
arfgengisfræðinni — ekki einu sinni í aðaldráttum. En hitt má
væntanlega gera ljóst, að deilur af þessu tagi geta orðið örlaga-
ríkar fyrir Ráðstjórnarríkin. Arfgengisfræði Lysenkós hefur