Jörð - 01.12.1948, Blaðsíða 73
JÖRÐ
71
getur skapað, einn af vitum veraldarinnar.*) Og það er ekki
nein Saltvíkurtýra á fífukveik norður á Furðuströndum —
heldur einn af þessum björtu blossavitum allra tíma.
(En prívat milli sviga sagt: — Góða skáld, hvernig gaztu
fengið þig til að sýna stelpugægsnunum svona agalega grimmd?
Kannski eftir fáeina glaðbjarta daga og góðblíðu nokkurra
nótta?)
' JÁ, þannig skapa þeir nú listaverkin, snillingarnir, kæri
lesari. Svo það er hreint ekki skrítið, þó að við séum ekki
alltaf fljótir til að meðtaka þau og þeirra mikilleik allan.
Þeir skapa þau hreint og beint úr engu og því, sem er verra
en ekkert.
En í þetta skipti var það nú líka höfuðsnillingurinn okkar
sjálfur, sem að verki var — heimsfrægur maðurinn í mörgum
löndum.
Og áður en við leggjum nú þessi kennsluljóð hans til hliðar
um stund, virðist mér, að bæði gæti orðið til fróðleiks og
skemmtunar að athuga enn þá einn undursamlegan vísupart,
sem þar er að finna:
„Kolviðarhóll er kunnur næturgestum,
kaffið er drukkið þar á brotna stólnum.
Þar ætti að vera víðboð banda prestum.
Ó, voðalega er skemmtilegt á Hólnum!
Hér finnur maður það bezt, hvernig hægt er fyrir meistar-
ann að sameina í ljósbirtandi krafti allt það, sem af andanum
er fætt.
Já — og meira en það!
*)Ég vil leyfa mér að láta þess getið, að fæst þeirra faguryrða og lofmæla,
sem ég í allri auðmýkt get látið meistaranum í té í sambandi við þessi örfáu
gullkorn, sem týnd eru hér upp úr ljóðum lians og tilfærð, — að fæst þeirra
hefi ég fundið honum í eigin andríki. Og sama gildir um þær líkingar og
ummæli, sem á eftir fara, um meistarans mannvit og snilli í samanburði við
önnur stórmenni íslenzk. Flest-allt er það fengið að láni. Ég hef aðeins reynt
að draga það saman hér í eitt — og bergmála þar með nokkrar niðurstöður,
orð og ummæli, víðsvegar úr ritúm og ræðum, annarra mér meiri og marg-
vísari í listum og bókmenntum.