Jörð - 01.12.1948, Blaðsíða 101
JÖRÐ
99
Hið mikla skáld smælingjanna, skáld hlýju, samúðar og
örvandi vona, Martin Andersen Nex0, missti og trúna á liina
friðsamlegu, samfelldu þróun þjóðfélagsins og menningarlífs-
ins, og hann gerðist kommúnisti. Hann skrifaði athyglisverða,
en ekki listrænt mikilvæga, bændasögu frá braskárunum, Midt
i en Jœrntid; en skósmiður nokkur józkur, sem tók ekki að
senda frá sér bækur, fyrr en hann var kominn yfir fertugt,
Thomas Olesen Lökken, skrifaði miklum mun merkilegri
skáldsögu um þetta efni, þar sem var þriggja binda bálkurinn
um bóndann Niels Hald. En á árunum 1932—39 kom út ævi-
saga Nex0s, rituð af honum sjálfum, og er hún alls fjögur bindi.
I}ar sýnir hann einmitt mjög snilldarlega, hvernig vegur og
þroski hins gáfaða og tilfinninganæma, en snauða og vegalausa
drengs vex smátt og snrátt í samræmi við friðsamlega og farsæla
þróun þjóðfélagslegs réttlætis og við aukna mannhelgi. Hins
vegar eru flestar aðrar bækur Nex0s frá þessu tímabili mót-
aðar af óraunsæju ofstæki, og þær liafa líka orðið mjög áhrifa-
litlar nreðal dönsku þjóðarinnar. Það lrefur og orðið svo, að
Martin Andersen Nexö hefur á síðari árum löngum búið ýmist
í Sviss eða Rússlandi, og í Danmörku hefur hann meir og
nreir orðið, í vitund þorra almennings, hinn sálaði höfundur
ýmissa ágætra smásagna, senr út komu lrér áður á árum, hinna
miklu skáldsagna um Pelle Erobreren og Ditte Menneskebarn
og loks sögunnar um piltinn, sem jókst að vizku og vexti um
leið og alþýðan í landi lians vann sína nriklu sigra — en hins
vegar hefur hann svo orðið heiðursborgari í smábænum Allen-
baclr í Sviss og heiðursfélagi í sovélinu í Samara í Suðaustur-
Rússlandi, og er þaðan skammt til Asíulanda í suðri og austri.
A F yngri lröfundum voru þeir merkilegastir og mikilvæg-
L\ astir, Kaj Munk og Jakob Paludan.
Kaj Munk er mjög kunnur orðinn hér á landi fyrir leikrit
sín, sem sum iiafa verið hér leikin, en þó ennþá frekar fyrir
baráttu sína gegn ofríki og yfirgangi Þjóðverja í hinni her-
numdu Danmörku og gegn svikastarfsemi danskra kvislinga —
og af því píslarvætti, sem varð hlutskipti hans. Á sviði bók-
menntanna var hann maður hinnar miklu andlegu órór, sem