Jörð - 01.12.1948, Blaðsíða 204
202
JÖRÐ
ER þá meiningin að „vestrænt samband" eigi aðeins að mið-
ast við það að verjast rússnesku hættunni, sem nú vofir
yfir? Því er til að svara, að samband, sem einungis væri miðað
við slíkt, gæti ekki átt sér langan aldur. Annað hvort yrði það
að „leggja í hann“ eða leysast upp. En Iiinn vestræni heimur
vill einmitt helzt komast hjá því að „leggja í hann“.
Þó að undarlegt sé, er eins og þegar sé stríð, — með lífrænum
vexti að vopni. Það er vaxtarkapphlaup. Og sama iðnþróunin,
sem gert hefur þjóðríkin úrelt, nagar þegar rætur lífsskilyrða
meginlanda-ríkja. Hún stefnir beint að hnattríki.
Eins og er á heimurinn um að velja tvö form fyrir væntanlegt
alríki. Minni ríkin dragast að þeim tveimur risaríkjum, sem
tákna hvort sína leiðina. Kerfin tvö fléttast saman og víxlast
ýmsa vegu. En að lokum vex annað fram úr hinu. Það getur
orðið með styrjöld, en það gæti líka orðið styrjaldarlaust.
Sem stendur er það hlutverk Vestursins, jafnframt því að
skipuleggja varnir sínar, að þróa með sér þau form samþjóð-
legrar yfirstjórnar, er að lokum geti hentað öllum þjóðum.
I þessu efni er það áberandi, hvað „vestrænt samband"
stendur betur að vígi en Evrópusamband. Það hefur stóran
kjarna, Bandaríkin, Bretland og Samveldislöndin, með sam-
eiginlega tungu. Það hefur enn stæni kjarna með lýðræðis-
legar hefðir og hugsunarhátt. Það hefur stríð-prófaða
reynslu um samstjórn í hernaði, er spennti um allan hnöttinn,
þar sem eru sameinuð herráð Breta og Bandaríkjamanna. Hér
eru efnin til að byggja úr nýja, stjórnarfarslega heild.
Heimsókn Harry Hopkins til Stalíns.
Lesendur JARÐAR minnast þess vafalaust, að hún flutti drið 1945 þýðingu
af grein, sem hinn kunni trúnaðarmaður Roosevelts forseta, Harry Hopkins,
birti um fyrstu heimsókn sína til Stalíns. Grein þessi var ba:öi mjög skemmti-
leg og mjög merk. Nú hefur hins vegna bandaríska vikublaðið Collier's, 26.
júní s. 1., birt lcyniskýrslu Harrys til Roosevelts um þá heimsókn, að báðum
látnum. Athyglisverð er þar öðru fremur umsögnin um leynilegt vald bak við
Stalín, er jafnvel geri liann ómerkan orða sinna — Pólítbýró — stjórnmála-
nefnd Kommúnistaflokks Rússlands (sbr. JÖRÐ VIII, 3.-4., bls. 260). Robert E.
Sherwood skrifar mcð skýrslu Harrys og telur, að livorki hann né Roosevelt
hafi þó haft glögga hugmynd um þetta dulda vald.