Jörð - 01.12.1948, Blaðsíða 89
JÖRÐ
87
veita tunguna og tilveru þjóðarinnar. Því án eigin tungu erum
við ekki lengur þjóð.
Einni öld eftir að síðasta hljómstuðlastefið hefur stafast í
samræmda heild, í hrynjandi mýkt og sveigjanleik þjálfaðs
tungutaks — sveipað ómblæ bjartra opinna orða. Einni öld
eftir að síðasti stefjahljómurinn í stuðluðu íslenzku kvæði
hefur dáið út. Einni öld eftir að síðasta ljóðið hefur ómað frá
íslenzkum vörum, er enginn íslendingur lengur.
Nei, ekki einni öld síðar, heldur hálfri. Og kannski ekki það,
ef hún verður jafn sigursæl og hingað til, sú yfirstandandi her-
för hinna bókmenntalegu básúnuengla fyrir orðvönuðum
óljóðum margháttaðra ofvita og óvita gegn óðlist þjóðarinnar
og arfborinni ljóðskýnjan íslenzkrar alþýðu.
Og því er mér næst að halda, að hinum foriia burlesque-
meistara okkar mundi renna til rifja ástandið í slóð lærisveina
sinna nú, mætti hann vitja hingað aftur í dag. Og þykja nú
eflaust fullmargir kettir komnir í Þorbjarnarból.
Virðist mér því kapítulum þessum, um ljóðamenn og ljóð-
list á Islandi, sé viðeigandi að ljúka með einu versi þessa löngu
liðna meistara — hvers andi, efni og allur stíll fellur svo
fagurlega að kvæðatízku okkar, á hinurn fyrstu fullveldisár-
um, og framtíðar ljóðlist íslendinga eins og horfir:
Þambara, vambara þeysingssprettir —
þvi eru hér svo margir kettir?
Agara, gagara yndisgrænum —
illt er að hafa þá marga á bænum.
Akureyri, á útmánuðum 1948.
Steindór Sigurðsson.
SKRÁ yfir höfunda þá og bækur, sem um er rætt í kapítulum þessum og til
er vitnað, eða leiðarorð (motto) versanna fengin frá. Bls.tölin vísa til greinar-
innar. — St. G. Stephansson: Andvökur, bls. 48. Þorst. Erlingsson: Þyrnar, bls.
51. Sig. Jónsson frá Brún: Sandfok, bls. 52. Jón Bergmann: Ferskeytlur, bls. 53.
Anonymus: Tímarit Máls og menningar, bls. 53—54. St. Steinarr: Ferð án fyrir-
heits, Spor í sandi o. v., bls. 54—55. Þórbergur Þórðarson: Hvítir hrafnar, bls.
56—57. Sig. Sigurðsson: ísl. úrvalsstökur I, bls. 58. St. G. Stephansson: Á ferð og
'flugi, bls. 59. Staðarhóls-Páll: Hafræna, bls. 61. Sig. Sig. frá Arnarholti: Ljóð,