Jörð - 01.12.1948, Blaðsíða 146
144
JÖRÐ
íslandi og á listaskáldinu góða — og frá örlögum Jónasar og
lífsreynslu Davíðs frá Fagraskógi sjálfs. — Þorsteinn M. Jóns-
son hefur gefið bókina út, og er útgáfan íburðarlaus, en býður
af sér góðan þokka.
SÖNGUR STARFSINS heitir ljóðabók eftir skáldkonuna
Huldu, sú síðasta, sem hún sjálf bjó til prentunar, og kom
bókin út sama árið og skáldkonan lézt. Útgefandinn var ísa-
foldarpre7itsmiÖja h.f. í þessari ljóðabók eru rnörg kvæði, og
sýnir hún, að hugur skáldkonunnar liefur meira og meira
sveigzt til efnisvals inn á svið fornra sagna. Ljóðin bera annars
glögg einkenni hinnar mjög svo ljóðrænu og fegurðarunnandi
skáldkonu. Lestur þessarar bókar varð til þess, að ég las fyrri
ljóðabækur Huldu á ný, og við þann lestur varð mér það
fyllilega ljóst, sem ég raunar hafði áður liaft á tilfinningunni,
að ljóðum þessarar gáfuðu og menntuðu skáldkonu hefur ekki
á síðari árurn verið sá gaumur gefinn, se'm vert hefði verið.
Islenzkar konur hafa ýmiss konar samtök, og sumar þeirra eru
sífellt að rekast í því, að þeim sé ger margs konar óréttur. En
ekki hef ég orðið var við það, að nein þeirra sæi ástæðu til að
beita sér fyrir því, að til vegs væri hafin minning þeirrar konu,
sem hafði fyrst íslenzkra kvenna hvort tveggja í senn, menntun
og metnað til jress að ætla sér ekki minna hlutverk á sviði
bókmenntanna en karlmenn, er leggja stund á skáldskap. En
iivað sem þessu líður, er það víst, að ljóðabækur Huldu voru
þannig útgefnar og svo lítið fyrir þær gert, að þær vöktu ekki
verðuga athygli, og ég hygg, að ef út væri gefið vandað úrval
ljóða iiennar, þá mundu ýmsir verða hissa við lesturinn. Eins
er Jrað, að úrval úr sögum Huldu og ævintýrum mundi sýna
hana sem skáld í óbundnu máli í talsvert öðru ljósi en hún
stendur nú hjá allmörgu af yngra fólkinu — og jafnvel því
eldra líka.
FEGURÐ DAGSINS er fjórða ljóðabók Kjartans Gíslasonar
frd Mosfelli. Sú fyrsta kom út fyrir tuttugu árum. Hún
heitir Nœturlogar. Önnur, Skrjáfar i laufi, kom út 1936, og sú
þriðja, Vor sólskinsár, 1941. En Kjártan frá Mosfelli hefur ekki