Jörð - 01.12.1948, Blaðsíða 64
62
JÖRÐ
og þeim tónrænu möguleikum, sem búa í hinu hljómmagnaða,
stuðlum steypta formi íslenzka ljóðsins.
Því í fullu samræmi við allt lífslögmál um baráttu algerra
andstæðna, hlýtur líka hinn grómagnaði þróttur hljómstuðla-
stefsins að vera þessum þríþættu stormsveitum formlausrar al-
deyðu sérstakur þyrnir í augum.
En þríþættar virðast þær vera fyrst og fremst. Að minnsta
kosti sýnast hinir styrrgleiðustu stríðspostular þessarar tónlausu
og taktskekktu bablmælaboðunar í landi ljóðsins aðallega konia
frani úr drepsorta þriggja átta. Og að upp frá þremur eymdar-
djúpum mannlegrar tilveru stigi liðsafnaður hinnar Jrrísettu
samfylkingar.
Vinstri fylkingararmur: Hæfileikar á villuvegum. Misnotuð
geta vegna loddaraættaðrar hneigðar til að láta taka eftir sér
fyrir eitthvað á einhvern hátt. Vonsviknar og kergjufylltar van-
metasálir, sem finna svölun í því að hneyksla og vekja ergju
annarra. Og yfirleitt alls konar mislukkaðir hæfileikar — lífs-
reköld, hrakin, skekin og brimbarin úr ósjóum tveggja stór-
styrjalda. Fljótandi flök undan kastvindum kvíðans, með öll
sín lík í lestinni — sinnar lífstrúar, hugsjóna og himindrauma.
Hægri fylkingararmur: Vanaðir og villtir. Fórnarlömb ým-
issa Jojóðfélagslegra og samfélagslegra máttarvalda nútímans,
sendir fram úr formyrkruðum prísundum skoðanasefjaðs múgs-
uppeldis; knúðir áfram af hlekkjahringli sinna eigin hugsana-
fjötra, gegn heilli veröld geigvænlegra Glámsýna.
Og svo brjóstfylkingin: Óvitar og andlega volaðir, sem ryðj-
ast út úr frumskóganótt Jrekkingarskorts og getuleysis og ekkert
vita, livað Jreir eru að gera.
Þannig virðist hún samansett, hin þríarmaða stormsveit, sem
að bakvígi virðist nú eiga sér ótrúlega sterk máttarvöld.
Jafnvel viðurkennd og þjóðkrýnd áhrifaöfl íslenzkra bók-
lieima hafa brugðið þar yfir skildi og búið þeim skjólveggi.
Þannig virðist hann úr Jrrenns konar soramálmi samanbrædd-
ur, sá liinn andlegi þríforkur, sem nú er otað gegn skapandi
jDrenningu orða, hljóma og hugsunar.
Þríforkur, hristur og skekinn með illum látum og emjan,
gegn lifandi söngvatungu Jijóðarinnar og listrænni þrá hennar