Jörð - 01.12.1948, Blaðsíða 140
Guðmundur Gíslason Hagalín:
BÓKABÁLKUR
Ljóðabækur
tSLANDS ÞÚSLfND ÁR heitir ljóðasafn mikið, sem Helga-
X fell gaf út í fyrra. Þar er fyrst Fornöldin — um hálft sjötta
hundrað blaðsíður. Hefur dr. Einar Ólafur Sveinsson prófessor
valið í það bindi. Er gott að geta gengið að svona miklu af hin-
um forna skáldskap á einum stað, en mjög tel ég það misráðið,
að fá alþýðu manna þetta í liendur án skýringa á orðum og
kenningum. F.g hygg, að margt af þesstmi forna skáldskap verði
látið ólesið af þorra manna sakir vöntunar á slíkum skýring-
um.#) — Annað bindi safnsins er skáldskapur tímabilsins frá
1300—1600. Þar hefur dr. Pdll Eggert Ólason annazt valið.
Þetta bindi er hálft þriðja hundrað blaðsíður. Þar er fjölda-
nrargt, sem flestum ólærðum mönnum er nýnæmi, og bætir
þetta bindi úr aðkallandi þörf. Ekki er þarna eins brýn nauð-
syn á skýringum og í fyrra bindinu, en sanrt hefði verið bót að
því, að sumt af þessum kvæðum liefði verið skýrt. — Þriðja
bindið flytur skáldskap tveggja alda, 17. og 18., og hefur Snorri
bókavörður Hjartarson valið kvæðin. Þarna sakna ég kveð-
skapar, sem ég tel, að sjálfsagt hefði verið að velja, en hins vegar
Jtef ég engan veginn kynnt mér svo skáldskap þessa tímabils,
að ég geti fellt neinn lieildardóm um valið, en víst er um það,
að betur er farið en lieima setið, rnargt sérlegt og margt með
ágætum á þeim liartnær 300 blaðsíðum, sem þessu tímabili eru
Jielgaðar. — Þá er það 19. öldin. Bindið, sem flytur úrval úr
Jjóðum þeirrar aldar, er 400 bls., og hefur Arnór bóndi og rit-
höfundur Sigurjónsson verið kjörinn til að annast valið. Víst
Irefur lionum verið allmikill vandi á liöndum og sízt hugsan-
legt, að hann gæti gert öllum til hæfis. Ég mun nú láta nægja
*) Síðan þetta vav skrifað, hef ég frétt, að von sé á sérstöku skýringa-
hefti. - G. G. H.