Jörð - 01.12.1948, Blaðsíða 61
JÖRÐ
59
6. EN: „hver mannsandi hlaut vist að hugsa þar eins,
hver hönd vera álika töm.u
ÞESSI saga ein saman ætti líka að nægja til þess að hverjum
íslendingi fyndist sem kaloddi væri sér brugðið í brjóst
— kaloddi uggs og ótta — í lrvert sinn er hann vaknar til vit-
undar um einhver þau eyðingaröfl, er ægðu þessum dýrmæta
þjóðararfi. En slík öfl hafa því miður löngum verið þar að verki
bæði ljóst og leynt — vargkjöftuð sum og óheiilavænleg ásýnd-
um, önnur meira í ieyndum legin og lítt sýndarleg. En þó í
eðli sínu kannski engu síður varasöm og válynd.
En fram til þessa hafa þau þó aldrei getað skaðað ísdenzka
ljóðlist .til lengdar — eða svo að lrenni hafi orðið að örlagasköp-
unr. Þvert á móti mætti segja, að þessi helgilist okkar hafi
stigið upp úr ösku hverrar reynslu og lyft sér tii flugs bjartari
og fagurfjaðraðri, — eins og sá fugl Fönix í fyrndinni gerði.
Sú hættan, sem í þessum efnum hefur verið langæjust og
verst viðureignar, fram til þessara síðustu tíma, — er að sjáif-
sögðu sú hætta á stöðnun, sem ávallt fylgir hverri þróun, — mis-
jafnlega nærgöngul að vísu, eftir hvasseygð þein'a, sem á verði
vaka á hverjum tíma. En ávallt sú hættan, sem á skemmstri
stund gæti breytzt í fúllkomin nátttröllaörlög, ef sljósýnar
syfjusálir gæta þar vega. Og eru það þó þau sköp, sem ísienzkt
ijóðlistarform ætti sízt að þurfa að óttast, sökum sinna tak-
markalausu þróunarskilyrða — fólginna í hinni tónrœnu sköp-
unargetu stuðlahljómanna og óendanlegri fjölþættni og fjöl-
hæfni í stigskipan hljóðfallsins og þeim blæbrigðum lnynjand-
innar, sem þar af leiðir. Sem sagt, fyrir ótakmarkaða möguleika
i notkun lirunhljómsins,*) við listræna sköpun úr orðum og
hugsun.
En þó má það ekki gleymast, að á þróunarleiðum þess, fylgja
avallt fast eftir höfuðmeinvættir allrar stöðnunar. Og þar í
ljóðheimum eru þær kannski ásæknari og varúðarverðari en
víðast hvar annars staðar.
Lífhrædd hefðatryggð og fyrirmyndadýrkun eldri leiðbein-
*) Nota þetta orð, hrunhljóm, til að reyna að tákna einyrt hugtökin: takt,
rythmus, vibration.