Jörð - 01.12.1948, Blaðsíða 141
JÖRÐ
139
að gefa lesendunum nokkra hugmynd um, hvernig liann hefur
skipt rúminu milli höfundanna. — Jónas Hallgrímsson og
Stephan G. Stephansson hafa lilotið 61 bls. hvor, og eru í eins
konar meistaraflokki. Grímur Thomsen hefur lilotið 40 bls.,
Matthías Jochumsson 35 og Einar Benediktsson 33, og rnætti
telja þessa þrjá í 1. flokki. Þá er 2. fl., þeir Þorsteinn Erlingsson
og Guðmundur Eriðjónsson, báðir með 23 bls., en í 3. fl. verða
Hannes Hafsteir. með 13., Steingrímur Tliorsteinsson, Bene-
dikt Sveinbjarnarson Gröndal, Páll Ólafsson og Ólöf Sigurðar-
dóttir — öll með 12, og loks Fornólfur (dr. Jón Þorkelsson
yngri) með 11. í 4. fl. verða svo t. d. Indriði Þórkelsson með
4 bls., Kristján Jónsson, Þorsteinn Gíslason og Jón Þorsteins-
son á Arnarvatni með Si/j, og Guðmundur Guðmundsson með
3 — en í fimmta fl. verða t. a. m. Jón Ólafsson með i/2 bls. og
Gestur (Guðmundur Björnsson landlæknir) með sama. Eftir
Jón Ólafsson er valið kvæðið Alaska — og virðist mér það gefa
mjög einhæfa hugmynd um kveðskap Jóns, svo að ekki sé fastar
að orði kveðið. Eftir Ólínu Andrésdóttur er þarna kvæðið
Svarað bréfi, en engar ferskeytlur. Ekki verður Arnóri brugðið
um það, að hann hafi dregið mjög taum Sigurjóns Friðjóns-
sonar í valinu, því að honum hefur einungis verið úthlutað 2
bls. — Loks er það þá 20. öldin. Hún hefur hlotið 200 bls.
Tómas skáld Guðmundsson hefur tekið að sér að velja ljóðin,
en hann lætur þess getið, að ýmsir af þeim, sem þarna hafa
hlotið sess, hafi sjálfir annazt valið. Ekki getur hann þess,
hverjir Jaeir eru, sem hann hefur selt sjálfdæmi. Tómas hefur
hlotið 20 bls., Davíð Stefánsson og Stefán frá Hvítadal 17,
Jakob Thorarensen 11, Örn Arnarson 10, Jón Helgason
prófessor 9, Snorri Hjartarson 7, Halldór Laxness 6, þar af
Unglingurinn i skóginum 31/, bls. — en Hulda er þarna heldur
ekki nema með 3 bls., og Jón Magnússon aðeins með 5i/2 —
t. d. ekki birt kvæðið Gamall heimur. Ekkert kvæði er
þarna eftir alþýðuskáldin Jón Bergmann og Gísla Ólafsson;
ekkert eftir Guttorm Guttormsson; ekkert eftir Guðmund
Daníelsson, Kristmann Guðmundsson, Guðmund Frímann
eða Kjartan Gíslason frá Mosfelli. Um val kvæðanna eftir hvern