Jörð - 01.12.1948, Síða 164
162
JÖRÐ
andblæ vísinda, frjálsrar hyggju og djarfra hugniynda. Ég fyrir
mitt leyti er þess fullviss, að ritgerð Árna Pálssonar mundi
vekja mikla athygli, ef hún væri vel þýdd og birt í erlendu
tímariti.
ÍSLENDINGASÖGUR. Það má heita, að á síðustu árum hafi
X verið háð kapphlaup um útgáfu íslendingasagna. Sumum
hefur virzt vera þetta afar leitt, en ég sé ekki ástæðu til neinna
leiðinda. Mér finnst það miklu fremur fagnaðarefni, að ýmsir
vilji gefa íslendingasögur út. Það sýnir, að eftir þeim er sótzt
af almenningi, og hin mikla auglýsingastarfsemi hefur vakið
á þeim stórum aukna athygli og örvað menn til að kaupa
þær. Útgáfufélag það, sem kallar sig íslendingasagnaútgáfu,
hefur gefið sögurnar út í 12 bindum, og brátt mun koma út
bindi, sem hefir að geyma efnisyfirlit og nafnaskrá. í útgáf-
unni eru nokkrar sögur og þættir, sem ekki eru í útgáfu Sig-
urðar Kristjánssonar.
Þessi útgáfa er prentuð á allgóðan pappír, og á síðunum eru
svipuð greinaskil og í flestum öðrum bókum. Þá eru og fyrir-
sagnir á köflum og vísnaskýringar neðanmáls. Allt þetta gerir
sögurnar aðgengilegri til lestrar öllum þorra manna. Þá liafa
sögurnar verið seldar í snotru bandi við sanngjörnu verði, og
hvort sem til útgáfunnar hefur fyrst og fremst verið stofnað
í gróðaskyni eða ekki, þá er hitt víst, að hún hefur orðið til
þess, að fjöldi manna hefur eignazt íslendingasögurnar, sem
ekki átti þær áður — og í mjög þokkalegri útgáfu. Og vonandi
sannfærast sumir um það, að íslendingasögur muni fyrst um
sinn verða lesnar án þess að úr þeim verði felldir hálfir og
heilir kaflar eða aðrar breytingar verði á þeim gerðar.
Lokið A HAlsi í Fnjóskadal 6. Agúst 1948.
Við færið (tvær stökur).
Gef þú, Drottinn mildur, mér, Skýzt um loftið skýjaryk,
minn d öngul valinn, skammt er á milli veöra,
flyöru þá, sem falleg er, — nú vill engin kindin kvik
fyrir sporöinn alin. koma viÖ endann neöra.