Jörð - 01.12.1948, Blaðsíða 156
154
JÖRÐ
GRÍMUR THOMSEN. Hlaðbúð hefur árin 1946—47 gefið
út tvær merkisbækur, sem veita allmikinn fróðleik um
Grím Thomsen. Fyrri bókin lieitir Húsfreyjan á Bessastöðum,
og eru í henni bréf móður skáldsins til Gríms amtmanns, bróð-
ur hennar. Sú síðari nefnist Sonur gullsmiðsins á Bessastöðum,
og flytur hún bréf til Gríms Thomsens og varðandi hann.
Finnur Sigmundsson landsbókavörður hefur séð um útgáfu
beggja bókanna, skrifað formála og skýringar, og er prýðilega
frá henni gengið, bæði af hans hendi og Hlaðbúðar. Eru
bækur þessar hinar merkustu heimildir um Grím, foreldra
hans og fjölmarga menn aðra, og þá einnig um hugsunarhátt
og aldaranda.
MERKIR ÍSLENDINGAR er bók, sem Bókfellsútgáfan
gaf út árið 1947, og er útgáfan að öllu hin myndarlegasta.
í bókinni eru ævisögur tuttugu og þriggja merkra íslendinga.
Hafa ævisögurnar verið birtar í Andvara á árunum frá 1880—
1906, og hefur Þorkell prófessor Jóliannesson búið þær undir
prentun og skrifað formála fyrir bókinni. Þarna eru gieinar
um íslenzka merkismenn frá Jóni Sigurðssyni til Arnljóts Olafs-
sonar, stjórnmálamenn, rithöfunda, fræðimenn, listamenn,
merkilega brautryðjendur eða aðra þjóðnytjamenn, og grein-
arnar hafa skrifað menn úr hópi hinna fremstu manna þjóðar-
innar. Er mikill fróðleikur í greinum þessum, og ýmsar þeirra
mjög vel skrifaðar. Er gott að geta gengið að þessum greinum
á einum stað, og væri æskilegt, að útgáfunni yrði haldið áfram.
SJÁLFSÆVISAGA SÉRA ÞORSTEINS PÉTURSSONAR
Á STAÐARBAKKA heitir mikið rit, sem Hlaðbúð hefur
ráðizt í útgáfu á. Um útgáfuna hefur séð Haraldur Sigurðsson
bókavörður, og hefur hann skrifað formála og samið nafnaskrá.
Séra Þorsteinn var Miðfirðingur, píetisti mikill, en talsverður
lærdómsmaður. Víst er bókin merk sem heimildarrit, en hætt
er við, að öllum þorra manna virðist hún ekki sérlega aðgengi-
leg til skemmtunar og fróðleiks, og virðist mér vafamál, hvort
ástæða sé til að gefa út slík rit sem þetta, meðan okkur er rnjög