Jörð - 01.12.1948, Blaðsíða 160
158
JÖRÐ
riði frá aukaatriðum, en getur þó með fám en ljósum orðum
furðu margs, sem heldur áhuga lesandans við í rauninni frekar
Jrurrt efni. Er þarna sannarlega veitt í stuttu máli furðumikil
og víðtæk fræðsla um hið sögufræga hérað.
BLAÐAMANNARÓKIN heitir rit, sem Bókfellsútgdfan
hefur nú gefið út í þrjú ár, 1946, 47 og 48 — einu sinni á
ári — og er Vilhjdlmur S. Vilhjdlmsson rithöfundur ritstjóri
þess. I ritinu hafa birzt greinar og ritgerðir eftir 63 fyrrverandi
og núverandi blaðamenn. Ritgerðirnar fjalla um margs konar
efni, og eru margar Jjeirra skennntilegar. En þó að einhverjar
þeirra kunni að vera frekar rýrar, hvort sem á þær er litið sem
fróðleikslind eða bókmenntir, Jjá sýna þær þó að nokkru mál-
far og ritmennskuhæfileika höfundanna. í ritinu eru birtar
myndir af höfundunum og helztu æviatriði þeirra. Ytri bún-
aður ritsins er sérkennilegur og snotur.
HEIÐNAR HUGVEKJUR OG MANNAMINNI. Svo heitir
bók, sem út kom árið 1946. Hún flytur ritgerðir og ræður
eftir Sigurð Guðmunclsson skólameistara. Hún er meira en 20
arkir í stóru broti, prentuð á Akureyri. Útgefandinn er Tón-
listarfélag Akureyrar. Ekki þykir mér útgáfan verulega
skemmtileg. Nú mun ætlunin að gefa út meira af ritgerð-
um og ræðum „meistara“, og vænti ég, að sú útgáfa beri
skemmtilegri svip. En vel sé samt Tónlistarfélagi Akureyrar
fyrir að hafa hafizt handa um útgáfu á þessurn sérkennilegu
og merkilegu bókmenntum. Annars ber skástu fyrirtækjun-
um, sem leggja fyrst og fremst stund á bókaútgáfu hér á landi,
að gefa út slík rit sem Jretta og greiða höfundunum myndarleg
ritlaun, hvort sem þau hyggja fljóttekinn gróða af útgáfunni
eða ekki. Með útgáfu slíkra rita afplána þau syndir sínar.
Fyrsti hluti bókar Jtessarar heitir Bókmenntabálkur, annar
Mannaminni, Jiriðji Manrúnir, fjórði A nemenda moldum, og
fimmti Heiðnar hugvekjur.
Ég ætla mér ekki J?á dul, að ég sé fær um það í stuttu máli
að gefa hér nokkra viðhlítandi hugmynd um gildi þessarar
bókar, en frá því að ég las fyrir 30—40 árum greinar og ritdóma