Jörð - 01.12.1948, Blaðsíða 85
JORÐ
83
til eftirtektar með ýmiss konar dáraspörkum, bíða meira og
minna tjón, hversu kunnáttumiklir og þjálfaðir tæknisnill-
ingar, sem þeir eru, þessir umtalsþyrstu kúnsthopparar og
sprellikarlar bókmenntanna.
Hins vegar eru kúnstirnar margvíslegar og misjafnar í allri
gerð, eins og líka tildrögin og orsakirnar eru fjölþættar og frá-
brigðilegar fyrir þessu óskemmtilega biliríi á andlegri heilsu
mannanna. Og yrði það allt seint sundurgreint, svo víða liggja
þeir þræðir og þær leiðir, er þar koma saman.
Það mætti þó kannski rekja og telja fram nokkuð af því
lielzta, sem augljósast er og áhrifaríkast í uppruna slíkrar
skræpulistar-útúrdúra, hjá ýmsum hinna fyrirferðarmestu
slíkra ritmokara, ef það hefði þá nokkurt afsökunargildi fyrir
þá eða þeirra attaníossa og aðra minni háttar dáðadrýgjendur
í þessari bókmenntalegu tóntegund.
En það er síður en að svo sé. Það er þvert á móti. Það er
flest enn síður verjandi en verkin sjálf.
Við vitum til dæmis, að slíkar ritrósir og skrifskita kitlar
mjög „bókmenntasmekk“ einhvers lítils hluta lesenda, senr
ekki lesa aðrar bækur og bókmenntir en þær, sem „krassa dá-
lítið“, og þar sem höfundurinn þorir að „sulla einhverju á
helvítin".
Og við vitum líka, að þessa síðustu áratugina hefur óvenju-
lega mikið af alls konar pestberum verið á sveimi í listum
og bókmenntum menningarþjóðanna. Ymiskonar úrkynjaðir
og ídíótíseraðir „ismar“ — getuleysis-,,istar“ og iðkendur hvers
konar fíflakúnsta.
Og þannig mætti halda áfram að rekja áhrif og uppruna,
sem aðeins gerir illt verra.
En þess ber og að gæta, að ekki er allt slíkt „komið af liinu
vonda“! Sumar slíkar littererar tilraunir geta verið í eðli sínu
hinar virðingarverðustu og eðlilegar í uppruna sínum. Og þær
verða því að minnsta kosti ávallt afsökunarverðar, þó að þær
hafi svo lent út í öfgar og ófærur og endað í foraði.
Þá eru og sumar slíkar ritkúnstir, þegar hugmyndaauðugir
snilliskapendur bregða sér einstöku sinnum út af línunni, að-
eins liressileg upplyfting. Skemmtileg gönuskeið glæsilegrar stíl-
6*