Jörð - 01.12.1948, Blaðsíða 14
12
JÖRÐ
valdi, sem einn karlinn nær á hælinu. Auk þess er auðvitað
lýst allnáið ýmsum öðrum hælisbúum. Víða er hér beitt svip-
uðurn stíl og í Kristrúnu, en er ekki eins heilsteyptur. Allmikið
hefur verið deilt um bókina; hafa sumir talið liana með beztu
bókum Hagalíns, aðrir til þeirra lökustu.
Móðir ísland er ,,ástands“-bók, fjallar um hernámið og
deilir á spillingu þá, sem sigldi í kjölfar þess.
Hér hefur þá verið drepið á helztu verk Hagalíns. En auk
þeirra eru til eftir liann fleiri smásögur en í bókum lians eru
og aragrúi greina í blöðum og tímaritum. Enn fremur þýð-
ingar.
GUÐMUNDUR HAGALÍN hefur staðið föstum fótum í
rammíslenzku þjóðlífi í öllum sagnaskáldskap sínum.
Sögupersónur hans eru íslendingar í húð og hár og umhverfið
íslenzkt. En þessi hugtök er hægt að þrengja enn nreir, því að
þessir íslendingar, sem Hagalín lýsir, eru flestir sannir Vest-
firðingar og umhverfi frásögunnar vestfirzkt. Fáir íslenzkir
rithöfundar hafa dregið svo dám af átthögum sínum. Hagalín
gerði sér þetta líka ljóst snemma á rithöfundarferli sínum. Það
sést bezt af orðum hans í formála fyrir bók sinni „Strandbú-
um“, sem kom út árið 1923. Þar segir hann:
„Þá er ég skrifa sögur, hef ég ósjálfrátt í huga Vestfirði, vest-
firzka lífernisháttu og vestfirzkt lundarfar.“
Það er augljóst af þessum orðum og verkum höfundarins
yfirleitt, að hann gerir sér vel ljóst, hvað hann er að gera í þess-
um efnum. Það mun vera svo, að þau áhrif, sem maðurinn
verður fyrir á bernsku- og unglingsárum, verða honum drýgst
og minnisstæðust síðar á ævinni. Osjálfrátt mun mörgum
skáldsagnahöfundinum fara svo, að hann sníði sögupersónur
sínar og sagnaumhverfi eftir því, sem hann kynntist í æsku.
Öll mikil skáldverk munu bera svip af reynslu höfundarins
sjálfs, þótt ýmsir reyni að skapa sér sjálfstæðan hugmyndaheim,
óháðan ákveðnu umhverfi og persónum, og vill það takast mis-
jafnlega. Svo bundinn er maðurinn umhverfi sínu. Það er
engan veginn altítt, að rithöfundar velji frásögum sínum svo
takmarkað umhverfi sein Hagalín hefur gert, þar sem flestar